Hvar eru karlarnir??? Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar 28. maí 2026 08:15 Ég hef starfað við að aðstoða fullorðna, krakka og unglina eftir missi í um 15 ár, en sjálfur missti ég dóttur mína Emblu Rut árið 2002. Ég, kannski sem karlmaður, leitaði mér ekki aðstoðar fyrstu árin. Ég taldi að ég gæti tekið þetta á kassann og haldið áfram án þess að þiggja aðstoð. Í kringum 2010, 8 árum eftir missi var ég kominn á andlega endastöð. Ég var búinn að halda inni erfiðum tilfinningunum í mörg ár án þess að finna þeim heilbrigðan farveg. Taldi að enginn gæti sett sig í mín spor eða skilið mig fyllilega, það sem ég kýs að kalla einhyrningheilkenni. Mér lánaðist að vera vísað á fund hjá Nýrri Dögun sem fjallaði um barnsmissi. Þar tók við mér maður sem átti eftir að breyta lífi mínu, Halldór Reynisson prestur. Ég skráði mig í hópanámskeið fyrir barnsmissi sem Halldór stýrði. Það var svo mögnuð tilfinning að hitta aðra og þá sérstaklega karla sem höfðu misst. Kannski var ég ekki einhyrningur eftir allt saman, sem var góð tilfinning en smá svekkjandi á sama tíma. En á þessu námskeiði tók líf mitt U-beygju. Þarna eignaðist ég von um að ég gæti fundið hamingju aftur eftir missinn. Að þrátt fyrir þungan missi er hægt að finna til gleði og fagna deginum í dag. Hluti af minni leið í að finna hamingju aftur var að aðstoða aðra. Ég þakka reglulega fyrir það að Halldór hafi leitað til mín eftir námskeiðið og spurt hvort ég myndi vilja verða hópstjóri og koma inn í starf Nýrrar Dögunar. Frá því að ég fór á þetta hópanámskeið hef ég stýrt fjölda hópa fyrir foreldra sem misst hafa barn, stofnað og stýrt hópum fyrir þá sem misst hafa vegna fíknar, hjálpað krökkum og unglingum og margt annað. Það sem hefur verið einkennandi í gegnum þetta allt er skortur á körlum sem leita aðstoðar. Af þeim sem leita sér aðstoðar hafa karlar verið að jafnaði 10-25% af þátttakendum í hópanámskeiðum. Það segir mér að það sem við erum að bjóða uppá er ekki að trekkja að karlmenn eða höfða til þeirra. Þess vegna langar okkur að byrja með nýtt starf sem er tileinkað karlmönnum í sorg. Það er mikilvægt fyrir okkur að þetta starf standi ekki og falli með mér og þeirri orku sem ég hef að gefa. Það var því svo ánægjulegt þegar Sorgarmiðstöðin vildi koma með mér í þetta verkefni og veita því stuðning. Við vitum ekki alveg hvar þetta endar, eða hvernig við ætlum að byrja en við ætlum að vera saman í þessu verkefni að skapa úrræði fyrir karla í sorg. Við erum að byrja á fimmtudaginn, 28.maí, með fyrirlestrafund í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Þar munu nokkrir karlmenn tala um hvernig þeir fundu hamingju aftur eftir sinn missi. Þetta verður fyrsti viðburðurinn af mörgum sem verða á næstu 12 mánuðum. Það sem ég vil opna á með þessu er umræðan um hvað þar er sem við getum gert til að aðstoða karlmenn betur. Þurfum við að vera með hópanámskeið bara fyrir karla, styttri fundi, þegja saman í hóp eða fara saman í ferðir...hvað er það sem við getum gert fyrir ykkur því okkur langar að vera til staðar. Höfundur er áhugamaður um úrvinnslu sorgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sorg Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar