Mikil leynd yfir meiðslum Neymar en þau minna á Romário Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. maí 2026 11:00 Neymar er að glíma við meiðsli í kálfanum í aðdraganda HM. Pedro Vilela/Getty Images Á meðan brasilíska landsliðið æfði í gær var Neymar í leynilegri rannsókn vegna meiðsla sem minna óneitanlega á Romário á HM 1998.
Mikil leynd er yfir meiðslum Neymar og Brasilíumenn hafa reynt að gera sem minnst úr þeim en óttast er að hann muni ekki ná sér í tæka tíð fyrir HM sem hefst eftir sléttar tvær vikur. Neymar er markahæsti leikmaður í sögu Brasilíu en hefur glímt við mikil meiðsli síðustu ár. Eftir að hafa slitið krossband og liðband í sitt hvoru hnénu þurfti hann að hafa mikið fyrir því að vera valinn í landsliðið en honum tókst að heilla Carlo Ancelotti. Kálfinn hins vegar er að angra hann núna og síðustu tvo leiki tímabilsins hjá Santos var Neymar fjarverandi. Hann er síðan ekki enn byrjaður að æfa með landsliðinu í æfingabúðum liðsins. Romário var markahæstur hjá Brasilíu á HM 1994 þegar Brassar urðu heimsmeistarar en hann var síðan sendur heim fyrir HM 1998.Alessandro Sabattini/Getty Images Í gær var Neymar sendur í rannsókn, sem brasilíski miðillinn GE lýsir sem háleynilegri. Af ótta við upplýsingaleka var læknamiðstöðin lokuð fyrir almenning og allir starfsmenn látnir skrifa undir þagnarskyldusamning. Nú ættu niðurstöður að liggja fyrir og næstu skref Neymar verða væntanlega ákveðin á næstu dögum. Talið er að hann verði ekki með Brasilíu í æfingaleikjunum tveimur fyrir HM. Neymar er ekki fyrsti Brasilíumaðurinn sem er valinn í HM-hóp meiddur, bæði Zico og Romário hafa upplifað það en sá síðarnefndi var sendur heim rétt fyrir HM 1998 í umdeildu máli. Romário hafði verið helsta hetja heimsmeistaraliðs Brasilíu árið 1994 en þjálfarinn Mario Zagallo ákvað að senda hann heim með tárin í augunum. Romário var að glíma við kálfameiðsli á sínum tíma, eins og Neymar.
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira