Viðskipti innlent

Fljúga til Fær­eyja árið um kring

Árni Sæberg skrifar
Slökkvilið Vogaflugvallar heiðraði flugvél Icelandair með vatnsboga þegar henni var lent þar í maí 2024. Flugvélin er af gerðinni Dash 8 Q400 og tekur 76 farþega.
Slökkvilið Vogaflugvallar heiðraði flugvél Icelandair með vatnsboga þegar henni var lent þar í maí 2024. Flugvélin er af gerðinni Dash 8 Q400 og tekur 76 farþega. Kringvarpið/Ólavur Frederiksen

Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá Icelandair segir að félagið hafi hafið flug til Færeyja í maí 2024 og flugleiðin hafi verið vinsæl frá upphafi. Flogið verði þrisvar sinnum í viku yfir vetrartímann, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, og áfangastaðurinn tengist vel við leiðakerfi Icelandair til og frá Keflavíkurflugvelli. Flugtími sé ein klukkustund og 45 mínútur.

Færeyjar séu í miklum vexti sem ferðamannastaður enda hafi þær upp á margt að bjóða. Stórbrotin og óspillt náttúra einkenni eyjarnar sem staðsettar eru mitt á milli Íslands og Skotlands. 

Flugið milli Íslands og Færeyja gegni einnig mikilvægu hlutverki í að tengja Færeyjar við Norður-Ameríku í gegnum Ísland og Icelandair hafi fundið fyrir auknum áhuga á þeim tengingum, ekki síst frá bandarískum ferðamönnum sem vilji heimsækja bæði Ísland og Færeyjar í einni ferð.

„Færeyjaflugið fór strax vel af stað og frá upphafi var markmiðið að stefna að flugi allt árið. Það er því mjög ánægjulegt að tilkynna um heilsársflug nú aðeins tveimur árum eftir að við byrjuðum að fljúga þangað. Færeyjar eru einstakur og vaxandi áfangastaður sem hefur upp á margt að bjóða fyrir okkar viðskiptavini. Tengsl Færeyja og Íslands eru sterk og með heilsársflugi viljum við styðja enn frekar við þau, um leið og við opnum á frekari tækifæri til tenginga við Norður-Ameríku,“ er haft eftir Tómasi Ingasyni, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×