Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Árni Sæberg skrifar 28. maí 2026 12:08 Baldvin M. Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins M. Hermannssonar, hafa keypt meirihluta félagsins. Jafnframt hefur bandaríska félagið Atlas Air Worldwide bæst í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51 prósenta hlut en Atlas 49 prósenta.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að samhliða eignist Atlas allt hlutafé í Arctic Aircraft Leasing ehf. og Northern Lights Leasing ehf., sem séu fjárfestingafélög innan samstæðunnar og fari með eignarhald flugvéla félagsins. Seljendur séu Hannes Hilmarsson, Geir Valur Ágústsson, Stefán Eyjólfsson og Helgi Hilmarsson, sem eignuðust Air Atlanta og tengd félög árið 2007. „Það eru merk tímamót fyrir okkur að eignast meirihluta í Air Atlanta og það undirstrikar hvaða trú við höfum á starfsfólki okkar sem og framtíð félagsins. Jafnframt er það stór áfangi fyrir Air Atlanta að fá inn jafn öflugan og reyndan alþjóðlegan flugrekanda eins og Atlas sem hluthafa. Viðskiptin styrkja því Air Atlanta enn frekar og opna á ný tækifæri til aukins vaxtar á síbreytilegum alþjóðamarkaði,“ er haft eftir Baldvin forstjóra. Kveðja stoltir Engar breytingar verði á daglegum rekstri félagsins, staðsetningu eða starfsmannahaldi og núverandi stjórnendateymi muni áfram stýra uppbyggingu félagsins með sama hætti og áður. „Air Atlanta stendur í dag sterkara en nokkru sinni fyrr og við erum afar þakklátir fyrir þau tæpu tuttugu ár sem við höfum átt samleið með félaginu. Fyrstu árin voru krefjandi, en með samheldni og ótrúlegri vinnusemi starfsfólks tókst að byggja upp sterkt, leiðandi alþjóðlegt flugfélag sem á djúpar rætur í íslenskri flugsögu. Við kveðjum með stolti, fullvissir um að nýir eigendur muni halda áfram að byggja á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið,“ er haft eftir Hannesi Hilmarsson, fráfarandi formanni stjórnar. Haft er eftir Michael Steen, forstjóra Atlas Air Worldwide, að viðskiptin endurspegli nálgun Atlas á markaði sem einkennist af takmörkuðu framboði á breiðþotum í frakt- og farþegaflugi. Kaupverðið trúnaðarmál „Með fjárfestingunni styrkjum við stöðu Atlas í Evrópu með reynslu og rekstrarmódeli Air Atlanta. Samstarfið mun auka aðgengi að flugvélum og styrkja enn frekar getu okkar til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hagaðila um allan heim. Air Atlanta hefur byggt upp sterkt orðspor í gegnum árin og við hlökkum til samstarfs við framúrskarandi teymi félagsins. Við teljum að þetta samstarf muni styrkja bæði félög og skapa sterka stöðu til áframhaldandi árangurs á alþjóðlegum flugmarkaði.“ Loks segir að gert sé ráð fyrir að viðskiptunum ljúki á þriðja ársfjórðungi 2026, að uppfylltum venjubundnum skilyrðum, þar á meðal samþykki eftirlitsaðila. Kaupverð sé trúnaðarmál. Fréttin hefur verið uppfærð.
Air Atlanta Flug Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Sjá meira