Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar 28. maí 2026 14:32 Flest fyrirtæki og stofnanir á Íslandi hafa fjárfest í alls kyns tæknilausnum til að verjast sívaxandi netógnum. Engu að síður sjáum við reglulega fréttir af gagnalekum, netárásum og rekstrartruflunum. Ástæðan er sjaldnast sú að tæknin hafi brugðist. Ástæðan er yfirleitt sú að upplýsingaöryggi hefur aldrei orðið raunverulegt forgangsmál stjórnenda og hluti af menningu fyrirtækis. Því miður verður það oft ekki fyrr en eftir að skaðinn er skeður. Upplýsingaöryggi er enn alltof oft flokkað sem tölvumál innan fyrirtækja og stofnana. Eitthvað sem tæknideildin á að sinna, en framkvæmdastjórn og stjórnir koma aðeins að þegar eitthvað fer úrskeiðis. Þetta er varhugaverð nálgun, hún getur verið kostnaðarsöm og laskað bæði traust og orðspor fyrirtækisins. Upplýsingaöryggi er ekki tæknimál árið 2026 heldur stjórnendamál. Stjórnendur bera ábyrgð á áhættustýringu skipulagsheilda. Í dag er upplýsingaöryggi ein stærsta rekstraráhætta flestra fyrirtækja og sambærileg við fjármálaáhættu, lagalega áhættu eða orðsporsáhættu. Samt sjáum við enn að upplýsingaöryggismál eru sett í hendur sérfræðingum án þess að vera hluti af reglulegri stefnumótun eða ákvörðunum stjórnenda. Ef upplýsingaöryggi er eingöngu til umræðu eftir að krísa skellur á er það ekki raunverulegt forgangsmál heldur viðbragð. Ef upplýsingaöryggi á að hafa raunveruleg áhrif þarf það að vera fastur liður á dagskrá stjórnenda, rætt á stjórnarfundum, tengt við rekstrarmarkmið og fjárfestingar, og metið með sama hætti og önnur lykiláhætta hvers fyrirtækis eða stofnunar. Þrátt fyrir alla tæknina eiga mörg alvarleg öryggisatvik rætur sínar í mannlegum þáttum. Veiðipóstar sem eru opnaðir með einum smelli, gögn rangt meðhöndluð, veik lykilorð eða einfaldlega skortur á skilningi á áhættunni. Rót vandans liggur oft í mannlega þættinum. Öryggismenning er ekki síður mikilvæg en kerfis- og tæknilegar varnir. Öflug öryggismenning felst í því að starfsfólk skilur hvers vegna upplýsingaöryggi skiptir máli, veit hvernig það á að bregðast við og upplifir að það megi ræða mistök og grunsamleg atvik opinskátt. Slík menning verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til þegar stjórnendur leiða hana markvisst og sýna gott fordæmi. Starfsfólk horfir fyrst og fremst til stjórnenda. Ekki hvað þeir segja, heldur hvað þeir gera.Ef stjórnendur sleppa öryggisfræðslu, læsa ekki tölvum þegar þeir yfirgefa starfsstöðina, nota einföld lykilorð eða fara fram hjá verklagi, senda þeir skýr skilaboð til starfsfólksins um að öryggið skipti ekki máli. Ef þeir gefa öryggismálum tíma á fundum, spyrja gagnrýninna spurninga og eru sjálfir fyrirmyndir í hegðun, þá smitast það út um allt fyrirtækið. Jafnframt þurfa þeir að gera viðbragðsáætlanir og æfa viðbrögð við atvikum, rétt eins og gert er varðandi brunavarnir eða annað rekstrarrof. Þegar upplýsingaöryggi er samþætt nýliðaþjálfun, daglegt verklag, árangursmælingar og stjórnendafundi verður það hluti af menningu fyrirtækisins. Æðstu stjórnendur leggja grunninn að öflugri öryggismenningu. Það þýðir að stjórnendur þurfa að vera sýnilegir talsmenn upplýsingaöryggis og taka sjálfir þátt í fræðslu og æfingum. Þeir þurfa að setja skýrar væntingar til starfsfólks, skapa umhverfi þar sem fólk þorir að tilkynna mistök og tryggja að öryggi sé aldrei fórnað fyrir hraða eða þægindi. Þetta eru ekki tæknilegar ákvarðanir. Þetta eru viðfangsefni leiðtoga. Í stafrænum heimi er traust eitt mikilvægasta samkeppnisforskot fyrirtækja. Traust er ekki sjálfgefið, það er áunnið og því þarf að viðhalda, en því er líka hægt að glata á einni nóttu. Stjórnendur hafa vald til að ákveða hvort upplýsingaöryggi sé raunverulegt forgangsmál eða fallegt orð í stefnu. Með því að setja skýra stefnu, sýna fordæmi og fylgja eftir kröfum, verja þeir ekki bara gögn heldur sambandið við viðskiptavini, starfsfólk og samfélagið allt. Stjórnendur sem fjárfesta í öryggismenningu eru því ekki bara að verja kerfi. Þeir eru að verja framtíð og orðspor fyrirtækisins. Netógnir munu halda áfram að aukast. Spurningin er ekki hvort fyrirtæki verði fyrir öryggisatviki, heldur hvenær og hversu alvarlegt það verður. Upplýsingaöryggi er ekki lengur afmarkað sérsvið heldur sameiginlegt ábyrgðarefni. Það er grunnforsenda nútímarekstrar allra fyrirtækja og stofnana. Stjórnendur verða að fara að setja upplýsingaöryggi á sömu hillu og önnur lykilforgangsmál eins og fjármál, gæði, öryggi starfsfólks og þjónustu við viðskiptavini. Þeir þurfa að leiða með fordæmi og skapa menningu þar sem upplýsingaöryggi er sameiginlegt verkefni allra. Upplýsingaöryggi er spurning um forystu, ekki kostnað. Það er mælikvarði á ábyrgð, framsýni og gæði stjórnunar. Stjórnendur setja tóninn. Og í stafrænum heimi er sá tónn annað hvort skýr og ábyrgur eða dýrkeyptur. Höfundur er sérfræðingur í net- og upplýsingaöryggi hjá netöryggissviði Fjarskiptastofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netöryggi Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar