Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. maí 2026 16:38 Fulltrúar nýs meirihluta í Hornafirði. Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að markmið samstarfsins sé að efla búsetuskilyrði enn frekar og styrkja samfélagið í heild með ábyrgri uppbyggingu, traustum rekstri og aukinni þjónustu við íbúa. Í samkomulaginu felst eins og áður segir að Hjalti Þór Vignisson sest í stól bæjarstjóra. Gauti Árnason verður formaður bæjarráðs og Ingibjörg Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar. „Næstu ár verða mikilvæg fyrir þróun sveitarfélagsins. Tækifærin eru fjölmörg en jafnframt bíða margvíslegar áskoranir. Áhersla samstarfsflokkanna verður á hag fjölskyldna, lækkun álaga, uppbyggingu innviða og bætta þjónustu um allt sveitarfélagið. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja jafnræði íbúa óháð búsetu og mæta áframhaldandi fólksfjölgun með markvissri uppbyggingu bæði í þéttbýli og dreifbýli.“ Flokkarnir leggi ríka áherslu á þjónustumiðaða og skilvirka stjórnsýslu, gott samráð við íbúa og opið samtal á fyrstu stigum mála. „Fræðslu- og frístundamál verða áfram í forgangi. Stefnt er að áframhaldandi uppbyggingu leik-, grunn- og framhaldsskóla, eflingu innra starfs og bættri aðstöðu fyrir íþrótta- og frístundastarf í öllu sveitarfélaginu. Jafnframt verður lögð áhersla á að styrkja list-, verk- og raungreinar.“ Í velferðarmálum verði unnið að því að bæta aðgengi að þjónustu, efla lýðheilsu og tryggja að íbúar í dreifbýli njóti sambærilegrar þjónustu og aðrir. Þá vilji flokkarnir taka vel á móti nýjum íbúum og styðja þá til virkrar þátttöku í samfélaginu. „Samstarfið byggir einnig á samþættingu umhverfis-, atvinnu- og menningarmála með það að markmiði að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. Áhersla verður lögð á ábyrga nýtingu auðlinda, fjölbreytt atvinnulíf og öflugt menningarlíf sem styrkir sjálfsmynd samfélagsins og aðdráttarafl þess.“ Á komandi kjörtímabili verði jafnframt lögð áhersla á öflugt samstarf við ríkisvaldið og aðra opinbera aðila, meðal annars um samgöngur, heilbrigðisþjónustu og hagsmuni heimamanna í tengslum við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Markmið samstarfsins sé skýrt, að gera Sveitarfélagið Hornafjörð að enn betri stað til að búa á og eftirsóknarverðum valkosti fyrir fólk sem vill setjast þar að. XB-XD_Málefnasamningur-A4-FINAL-3PDF392KBSækja skjal
Sveitarfélagið Hornafjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira