Veður

Á­fram snjór austan­til og þæfings­færð á Fjarðar­heiði

Atli Ísleifsson skrifar
Gular viðvaranir eru enn í gildi á norðaustanhluta landsins. Myndin er úr safni.
Gular viðvaranir eru enn í gildi á norðaustanhluta landsins. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Gular viðvaranir eru enn í gildi á norðausturhluta landsins og er nú þæfingsfærð á Fjarðarheiði en krapi og éljagangur á Hringveginum við Jökulá á Dal. Hálkublettir eru á Fagradal og Norðfjarðarvegi en hálka eru á Öxi og Breiðdalsheiði.

Á vef Veðurstofunnar segir að í dag verði norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu. Slydda eða snjókoma á austanverðu landinu og vegna þess hafa verið gefnar út gular viðvaranir sem verða í gildi fram á kvöld.

Staðan á Fjarðarheiði klukkan 11 í dag.Vegagerðin

Hiti um eða rétt yfir frostmarki. Rigning sunnanlands, en lengst af þurrt norðvestantil. Hiti 5 til 10 stig. Styttir upp á Suðvesturlandi í kvöld.

Á morgun verður norðaustan 5-13 m/s, en heldur hvassara á Vestfjörðum. Lítilsháttar rigning eða súld í flestum landshlutum, en úrkomulítið norðvestantil fram undir kvöld. Hiti 4 til 10 stig.

Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðaustan og austan 5-13 m/s. Rigning eða slydda með köflum norðaustan- og austanlands. Dálítil væta af og til sunnantil, en yfirleitt þurrt um landið norðvestanvert. Hiti frá 2 stigum í innveitum norðaustantil, upp í 12 stig á Vesturlandi.

Á sunnudag: Norðaustlæg átt 5-10 og styttir upp á norðan- og austanverðu landinu, hiti 3 til 8 stig. Hægari breytileg átt sunnan heiða og skýjað, en lengst af þurrt. Hiti að 14 stigum.

Á mánudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og sums staðar lítilsháttar væta. Líkur á stöku síðdegisskúrum á sunnanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig,

Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 7 til 13 stig.

Á fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt og skúrir, en bjart að mestu austanlands. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×