Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. maí 2026 08:30 Lionel Messi og félagar eiga titil að verja á HM í sumar. Getty/Marc Atkins Landsliðshópur ríkjandi heimsmeistaraliðs Argentínu fyrir HM í fótbolta hefur verið opinberaður.
Áður en HM hefst mun Argentína mæta Hondúras (7. júní) og Íslandi (9. júní) í æfingaleikjum. Argentína spilar svo sinn fyrsta leik gegn Alsír (17. júní) áður en liðið mætir Austurríki og Jórdaníu í riðlakeppninni. Lionel Messi er að glíma við smávægileg meiðsli en er að sjálfsögðu valinn í hópinn og verður fyrirliði liðsins á mótinu. Þetta verður hans sjötta heimsmeistaramót og Messi mun fagna 39 ára afmæli á meðan því stendur. Messi er leikjahæsti leikmaður í sögu HM en hann spilaði sinn 26. leik þegar Argentína vann Frakkland í úrslitaleiknum á HM 2022. Þeir Cristiano Ronaldo munu báðir slá met á þessu móti, sem einu leikmenn sögunnar til að spila á sex heimsmeistaramótum. Alls voru 17 af 26 leikmönnum hópsins hluti af hópnum á síðasta HM en nokkrir koma nýir inn. #SelecciónMayor Con toda la fuerza de los argentinos 💪🏻🇦🇷 pic.twitter.com/84Lh03BgxH— 🇦🇷 Selección Argentina ⭐⭐⭐ (@Argentina) May 28, 2026 Emiliano Martinez mun standa á milli stanganna en hann var valinn besti markmaður mótsins síðast. Fyrir framan hann í vörninni verða líklega Lisandro Martinez og Cristian Romero en sá síðarnefndi er að glíma við meiðsli. Miðjumennirnir Alexis Mac Allister og Enzo Fernandez verða væntanlega í stóru hlutverki en lífvörðurinn Rodrigo De Paul er einnig í hópnum. Fram á við mun mikið mæða á Julian Alvarez og Lautaro Martinez. Paz á fyrsta stórmótið en Prestianni skilinn eftir Hinn 21 árs gamli Nico Paz er á leið á sitt fyrsta stórmót, eftir frábært tímabil þar sem hann skoraði 12 mörk í ítölsku deildinni fyrir Como. Athygli vekur að Franco Mastantuono, átján ára gamall leikmaður Real Madrid, var ekki valinn. Sömu sögu er að segja af Alejandro Garnacho, leikmanni Chelsea sem var hluti af síðasta HM hópi. Þá er Gianluca Prestianni einnig skilinn eftir heima en hann hefði misst af fyrstu tveimur leikjum mótsins, vegna leikbanns sem hann var dæmdur í fyrir ummæli í garð Vinicius Jr. í leik Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni. 26 manna hópur Argentínu Markmenn: Emiliano Martinez (Aston Villa), Geronimo Rulli (Marseille), Juan Musso (Atletico Madrid), Varnarmenn: Gonzalo Montiel (River Plate), Nahuel Molina (Atletico Madrid), Lisandro Martinez (Manchester United), Nicolas Otamendi (Benfica), Leonardo Balerdi (Marseille), Cristian Romero (Tottenham Hotspur), Facundo Medina (Marseille), Nicolas Tagliafico (Lyon). Miðjumenn: Leandro Paredes (Boca Juniors), Rodrigo de Paul (Inter Miami), Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen), Enzo Fernandez (Chelsea), Alex Mac Allister (Liverpool), Giovani Lo Celso (Real Betis), Valentin Barco (Strasbourg). Framherjar: Lionel Messi (Inter Miami), Nicolas Paz (Como), Thiago Almada (Atletico Madrid), Giuliano Simeone (Atletico Madrid), Lautaro Martinez (Inter), Jose Manuel Lopez (Palmeiras), Julian Alvarez (Atletico Madrid), Nico Gonzalez (Atletico Madrid).
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira