Van Dijk sendi Slot kveðju Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 13:06 Virgil van Dijk og Arne Slot halda nú hvor í sína áttina. Getty/Robbie Jay Barratt Fyrirliðinn Virgil van Dijk hefur sent Arne Slot, nú fyrrverandi knattspyrnustjóra Liverpool, kveðju eftir að Slot var rekinn frá félaginu.
Hollendingarnir Van Dijk og Slot fögnuðu saman Englandsmeistaratitli fyrir ári síðan, á fyrstu leiktíð Liverpool undir stjórn Slot, en í vetur gekk allt á afturfótunum og hafnaði Liverpool í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, án titils, og komst með naumindum inn í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Í aðdraganda brottrekstursins sendi Mohamed Salah Slot tóninn, óbeint, með skrifum um að Liverpool yrði að endurheimta þungarokksfótboltann sem kom liðinu í hæstu hæðir og að allir sem kæmu til félagsins yrðu að skilja það. Van Dijk birti hins vegar mynd af sér smeð Slot og skrifaði falleg orð til landa síns nú þegar ljóst er að þeirra leiðir skilja. „Við gleymum aldrei Englandsmeistaratitlinum sem við unnum á fyrsta tímabilinu okkar saman. Þakka þér, Þjálfi, og megi þér og fjölskyldu þinni vegna sem allra best í framtíðinni,“ skrifaði Van Dijk. Virgil van Dijk birti þessa kveðju á Instagram.@virgilvandijk Flest bendir til þess að næsti knattspyrnustjóri Liverpool verði Andoni Iraola sem náð hefur frábærum árangri með lið Bournemouth og komið því í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Florian Plettenberg, blaðamaður Sky Sport í Þýskalandi, segir þó að Iraola hafi enn ekki alveg hafnað Bayer Leverkusen en að viðræður hans við Liverpool séu í gangi og þróist í rétta átt. 🚨⏳ Negotiations between Liverpool and Andoni Iraola are ongoing and advanced. #LFC Bayer 04 Leverkusen have been informed. However, they have not yet received a 100% rejection from Iraola. It now depends solely on Liverpool and Iraola reaching an agreement. @SkySportDE 🇪🇸 pic.twitter.com/SrgJ4mODXz— Florian Plettenberg (@Plettigoal) May 31, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Það bendir allt til þess að Andoni Iraola verði næsti knattspyrnustjóri Liverpool eftir að Arne Slot var fyrr í dag sagt upp störfum. Viðræður eru hafnar milli félagsins og fulltrúa Iraola. 30. maí 2026 12:54 Slot rekinn frá Liverpool Arne Slot hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool. Þetta fullyrti ítalski blaðamaðurinn, Fabrizio Romano, fyrstur manna í færslu á samfélagsmiðlinum X. Liverpool hefur núna staðfest tíðindin með yfirlýsingu. 30. maí 2026 11:20 Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira
Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Það bendir allt til þess að Andoni Iraola verði næsti knattspyrnustjóri Liverpool eftir að Arne Slot var fyrr í dag sagt upp störfum. Viðræður eru hafnar milli félagsins og fulltrúa Iraola. 30. maí 2026 12:54
Slot rekinn frá Liverpool Arne Slot hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool. Þetta fullyrti ítalski blaðamaðurinn, Fabrizio Romano, fyrstur manna í færslu á samfélagsmiðlinum X. Liverpool hefur núna staðfest tíðindin með yfirlýsingu. 30. maí 2026 11:20