Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 06:02 Marcelo Flores sleit krossband nokkrum dögum fyrir HM og missir því af mótinu í sumar. Getty/Gonzalo Gonzalez Marcelo Flores, leikmaður kanadíska landsliðsins, sleit krossband í úrslitaleik Meistaradeildar Concacaf-sambandsins á laugardag og mun því missa af heimsmeistaramótinu sem hefst eftir rúma viku. „
Fyrirgefið, ég hef ekki svarað neinum enn þá, þetta eru mjög erfiðir tímar hjá mér. Krossbandið er farið,“ skrifaði Flores á samfélagsmiðla. „Ég vil þakka öllum fyrir öll skilaboðin. Ég hef ekki verið í símanum eða skoðað skilaboðin, en ég lofa að svara öllum og ég kann virkilega að meta umhyggjuna. Ég kem sterkari til baka,“ skrifaði Flores sem meiddist í leik með mexíkóska liðinu Tigres UANL. Flores var að rekja boltann innan í vítateig andstæðinganna þegar hann virtist festa hægri fótinn í grasinu. Hann fann mikinn sársauka og féll öskrandi í jörðina. Læknateymi Tigres studdi Flores af velli en hann gat ekki stigið í fótinn. Leikmaðurinn meiddist aðeins 15 mínútum eftir að hafa komið inn á völlinn sem varamaður í seinni hálfleik. Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada, staðfesti fréttirnar á blaðamannafundi á sunnudag og sagði að hann og liðið væru niðurbrotin fyrir hönd Flores. Marsch hafði valið Flores í 26 manna HM-hópinn á föstudag, aðeins degi síðar var HM-draumur hans dáinn. Flores valdi upphaflega að spila fyrir Mexíkó en hann sótti síðan um leyfi hjá FIFA til að ganga til liðs við kanadíska karlalandsliðið. Flores fæddist í Kanada og á mexíkóskan föður, sem gerði honum kleift að spila fyrir bæði löndin. Marsch kallaði Flores upphaflega í janúarglugganum til að taka þátt í vináttuleik gegn Gvatemala, en hann gat ekki tekið þátt í æfingabúðunum þar sem landsliðsskipti hans höfðu ekki gengið í gegn. Flores lék loks sinn fyrsta leik með Kanada í landsleikjahléinu í mars og kom við sögu í leikjum gegn Íslandi og Túnis.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira