Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 13:32 Stuðningsmenn Barcelona halda uppi grínmynd af Aurelien Tchouameni að kýla Federico Valverde, liðsfélaga sinn hjá Real Madrid. Getty/David Ramos Aurélien Tchouaméni, miðjumaður Real Madrid og franska landsliðsins, hefur tjáð sig í fyrsta sinn um ágreining sinn við liðsfélaga sinn, Federico Valverde, í búningsklefa spænska stórliðsins.
Tchouaméni viðurkennir að „eitthvað hafi gerst“ en fullyrðir að atvikið hafi verið „gert meira úr en efni stóðu til“ og að nú sé „ekkert vandamál“ á milli þeirra. Real Madrid sektaði leikmennina um fimm hundruð þúsund evrur hvorn, 72 milljónir íslenskra króna, eftir að þeim lenti saman á æfingasvæði félagsins fyrr í þessum mánuði. Heimildarmenn ESPN segja að átökin hafi komið í kjölfar tveggja daga spennu. 🗣️En pleine préparation avec la sélection pour la Coupe du monde 2026, Aurélien Tchouaméni a été interrogé sur son altercation avec Federico Valverde à l'entraînement avec le Real Madrid, dimanche en conférence de presse. Le milieu tricolore ne s'est pas défilé sur le sujet, mais…— RMC Sport (@RMCsport) May 31, 2026 Tchouaméni er nú í landsliðsverkefni með Frakklandi að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið, á meðan Valverde – sem var meðhöndlaður á sjúkrahúsi vegna skurðar á enni eftir átökin, auk þess að hafa fengið heilahristing – var valinn í landsliðshóp Úrúgvæ á sunnudag. „Auðvitað gerðist eitthvað, það var hægt að sjá og heyra um það í fjölmiðlum,“ sagði Tchouaméni við blaðamenn í æfingabúðum Frakklands í Clairefontaine á sunnudag. ‼️ Tchouaméni habla por primera vez de su enfrentamiento con Valverde:✖️ "Leí que le había dado un puñetazo, pero no fue el caso".🏆 "Con Fede tengo un objetivo común: ganar títulos con el Real Madrid". pic.twitter.com/U949bK9KHy— El Chiringuito TV (@elchiringuitotv) May 31, 2026 „Það var gert meira úr þessu en efni stóð til vegna þess að þegar þú spilar fyrir Real Madrid þá kalla allar fréttir á gríðarleg viðbrögð. Mikið bull var sagt í blöðunum. Ég las að það hefðu verið slagsmál og að ég hefði kýlt hann, sem var ekki raunin,“ sagði Tchouaméni. „Ég ætla ekki að fara út í smáatriði. Það mikilvægasta er að félagið vissi hvað gerðist. Það er margt sem gerist í búningsklefanum sem kemst ekki í blöðin. Lífið heldur áfram. Fede og ég eigum sameiginlegt markmið: að vinna titla með Real Madrid. Það er ekkert vandamál. Persónulega eru engin vandamál með Valverde núna.“
Spænski boltinn Real Madrid CF HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira