Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar 2. júní 2026 12:02 Ég hef þekkt Þorgrím Þráinsson rithöfund um allnokkurt skeið. Einhverju sinni sagði hann mér frá því að hann færi í alla 150 grunnskóla landsins með erindi um lífsleikni fyrir nemendur í 10. bekkjar. Ég dáðist að elju hans og ástríðu fyrir vellíðan unga fólksins. Ég ákvað í kjölfarið að gera Þorgrím að fyrirmynd og fékk nokkra góða bakhjarla til þess að styrkja mig til þess að fara með erindi um andlega líðan í alla framhaldsskóla landsins. Framhaldskólarnir eru um 40 og hófst ég handa nú í febrúar og hef nú þegar farið í rétt rúmlega tíu skóla og hitt um 1000 nemendur. Ég hef rætt við nemendurna um ýmsa grunnþætti geðheilsu, s.s. skynjun, tilfinningar og hugsun. Einnig ræði ég mikilvægi tengsla, góðra samskipta og sjálfsmildi. Auk þess ræði ég mikilvægi bættra tengsla við náttúruna og skynsamlega skjánotkun. Í lok hvers erindis opna ég fyrir samtal við unga fólkið um líf þess og líðan. Ég talaði fyrst um geðheilsu fyrir framhaldsskólanemendur árið 1993 og það sem slær mig nú er hversu unga fólkið í dag er óvirkt. Þau spyrja sjaldan spurninga, virðast aftengd og eiga erfitt með að beina athygli sinni lengi annað en í símana. Ungfrú Grafarvogur árið 2026, Guðlaug Birta Sigmarsdóttir, sagði nýlegu í viðtali við Vísi að stærsta áskorunin hennar kynslóðar væri: „andleg heilsa og álag í nútímasamfélagi, t.d. samfélagsmiðlar, óvissa með framtíðina og stöðugur samanburður við aðra“. Meðaltalstími sem við eyðum í símum okkar á sólahring er nú samkvæmt evrópskum tölum 4 klukkustundir og 37 mínútur. Á sama sólahring tökum við tækin að meðaltal upp 144 sinnum. Allt sem þú veitir athygli vex. Innsæi mitt segir mér að því meiri tíma sem við eyðum í „skjálfinu“, því meira efni/innihald sem við neitum því takmarkaðri verði tenging okkar við eigin vitund og framlag til líðandi stundar. Það er augljóst að skjálífið hefur áhrif á líðan og takmarkalítil aftenging raunverunnar er áskorun. Tilvist okkar mótast í grunninn af eftirsókn eftir vellíðan á sama tíma og við gerum allt til að forðast vanlíðan. Alheimurinn er orka. Óskipt orka sem grundvallast af tíðni og takti. Við erum þessi orka, nærð af andardrætti. Við öndum, skynjum, upplifum, bregðumst við. Getur verið að við þurfum að næra tilvist okkar í ríkara mæli á stórauknum tengslum við náttúruna? Sækja í þá óskiptu orkutíðni sem við erum partur af. Samkvæmt rannsóknum Rannsókna og greiningar á andlegri heilsu mátu 78% framhaldskólanemenda hana góða eða mjög góða árið 2004. Sú tala var komin niður í 45% árið 2021. Ríkisstjórn Íslands einsetti sér í stefnuyfirlýsingu sinni árið 2024 að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu auk þess sem Viðreisn lagði sérstaka áherslu á geðheilsu ungmenna í kosningabaráttu sinni. Erum við að gera eitthvað í því? Höfundur er ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Héðinn Unnsteinsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar