Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 08:15 Jamie Vardy heldur hér á Sofiu dóttur sinni en við hlið hans er eiginkonan Rebekah Vardy en þetta var eftir síðasta leik hans með Leicester City. Getty/Gareth Copley Vardy-fjölskyldan er á leið í burtu frá Ítalíu eftir aðeins eitt tímabil en hún upplifði eitt óhugnanlegt kvöld í vetur.
Enski knattspyrnumaðurinn Jamie Vardy spilaði á Ítalíu á nýloknu tímabili en hann færði sig frá Leicester til Cremona á Ítalíu til að halda fótboltaferlinum áfram með Cremonese. Innbrotsþjófar létu til skarar skríða á meðan fjölskyldan var í Róm þar sem Vardy var að spila útileik. Í nýjum raunveruleikaþætti eru sýndar upptökur úr öryggismyndavélum frá glæpnum. Unsettling CCTV shows Jamie and Rebekah Vardy’s bedroom being ransacked as they open up about 'nightmare' https://t.co/cXbvVwsBJR— Manchester News MEN (@MENnewsdesk) June 3, 2026 Fjölskyldan hafði flutt inn í einbýlishús á Norður-Ítalíu sem var að verðmæti 330 milljónir íslenskra króna. Þau höfðu aðeins búið á Ítalíu í nokkra mánuði þegar Jamie Vardy og lið hans spiluðu útileik í Róm. Þá létu þjófarnir til skarar skríða og höfðu á brott með sér muni að verðmæti þrettán milljóna króna. Raunveruleikaþáttur hjónanna, „The Vardys“, var sýndur á ITVX og þar voru birtar upptökur úr öryggismyndavélum frá innbrotinu. Eiginkona Rebekah Vardy opnar sig líka um tilfinningar sínar. „Núna finnst mér ég vera algjörlega niðurlægð,“ sagði Rebekah Vardy í sjónvarpsþættinum. Hún rifjaði upp að hafa komið aftur að eigninni við Garda-vatn og séð fataskápshurðir opnar og verðmæti horfin, áður en upptökur úr öryggismyndavélum sýndu grímuklædda innbrotsþjófa inni í húsinu. Hún sagði: „Núna líður mér eins og það hafi verið brotið á mér, tilhugsunin um að einhver hafi verið inni í húsinu þínu og farið í gegnum dótið þitt,“ sagði Rebekah. „Núna líður mér eins og ég viti bara ekki hvað sé best að gera, en málið er að ég gefst ekki upp, ég er enginn aumingi, en ég held að þegar eitthvað svona gerist þá fær það mann til að efast um allt,“ sagði Rebekah og bætti við: „Þetta var bara skrítið. Þegar ég kom aftur inn í húsið fann ég á mér að eitthvað var ekki í lagi. Eins og allar fataskápshurðirnar mínar væru opnar. Ég vissi að einhver hefði verið þarna inni og tekið dótið mitt.“ Myndavélar inni í eigninni náðu myndum af eftirmálunum þar sem Rebekah spurði hvort börnin hennar hefðu fært skartgripina hennar á meðan sonur hennar, Taylor, sagði að það væru „kúkafótspor“ uppi. „Það má greinilega sjá fimm vopnaða menn með kúbein og lambhúshettur. Það sem gerðist hefur verið eins og martröð og hefur alltaf verið einn minn mesti ótti,“ sagði Rebekah. Rebekah segir að hún hafi byrjað að efast um allt eftir atvikið. „Ég er á nálum allan sólarhringinn. Mér finnst ég ekki vita hvað sé best að gera,“ sagði Rebekah. Jamie Vardy mun aðeins spila eitt tímabil hjá Cremonese en fjölskyldan hefur ákveðið að yfirgefa borgina. Það á eftir að koma í ljós hvar hann heldur ferlinum sínum áfram. Rebekah Vardy relives horror of £800,000 burglary in new ITV series as terrifying CCTV footage shows 'five armed men' inside the house https://t.co/gxmyr8AMcb— Daily Mail (@DailyMail) June 2, 2026
Ítalski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Enski boltinn Fleiri fréttir Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Sjá meira