Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð skrifar 3. júní 2026 12:31 Ég hef verið að velta þessu svolítið fyrir mér.Borgarlínan á Íslandi er nánast kennslubókardæmi um nákvæmlega sömu sálfræðilegu aðferðafræðina og beitt var gegn Obamacare í Bandaríkjunum. Þar voru það bæði Repúblikanar og hagsmunaaðilar sem fóru að nota nafnið Obamacare strax árið 2009 sem uppnefni til að tengja lögin við forsetann sjálfan, sem var mjög umdeildur á hægri vængnum. Það verður að segjast að þetta tókst nefnilega að fá almenning á móti verkefninu með því að virkja neikvæðar tilfinningar gagnvart einum stjórnmálamanni. Þannig var heiti laganna, Affordable care act, sem hljómar vel og jákvætt, skipulega breytt í Obamacare til að tengja það við forsetann. Viðamiklar rannsóknir og skoðanakannanir í Bandaríkjunum sýndu þetta síðar svart á hvítu. Þegar fólk var spurt út í afstöðu sína til Affordable Care Act, var yfirgnæfandi stuðningur við lögin. En um leið og nákvæmlega sama fólk var spurt út í Obamacare, hrundi stuðningurinn og andstaðan rauk upp. Fólk hataði sem sagt nafnið, en elskaði innihaldið. Staðan á Íslandi Á Íslandi sjáum við nákvæmlega sömu dæmisögu spilast út. Hugtakið Borgarlína var upphaflega búið til sem tæknilegt og jákvætt heiti yfir hágæða almenningssamgöngukerfi, svokallað Bus Rapid Transit (BRT). Andstæðingar verkefnisins áttuðu sig hins vegar fljótt á því hve auðvelt var að skrímslavæða orðið. Í pólitískri umræðu hefur nafninu markvisst verið snúið upp í samheiti yfir peningasóun, „stríð gegn einkabílnum“, „vinstri pólitík“ eða gæluverkefni meirihlutans í Reykjavík. Þetta er ákveðin tegund af sálfræðihernaði og klassísk beiting á því sem kallað er innrömmun (e. framing effect) í sálfræði. Mér finnst andstæðingum verkefnisins hafa tekist þetta lúmskt vel. Aðalmarkmiðið var jú að vinna stríðið um almenningsálitið með því að stjórna tilfinningum fólks í stað þess að ræða staðreyndir. Með því að tengja hlutlaust innviðaverkefni eins og BRT-kerfið við eitthvað neikvætt er ráðist beint á undirmeðvitund kjósenda. Fólk er látið upplifa reiði eða hræðslu í stað þess að hugsa rökrétt um lausnir á umferðarvandanum. Tími til að breyta um gír Kannski verður fyrsta raunverulega verkefni nýs borgarstjóra hreinlega að finna nýtt nafn yfir Borgarlínuna? Það eitt og sér gæti dugað til að núllstilla umræðuna. Annars segi ég bara: áfram gakk. Það er búið að endurskoða þetta verkefni margsinnis og niðurstöðurnar eru alltaf þær sömu. Endalausar endurskoðanir kosta bara ógeðslega mikla peninga og valda töfum á meðan umferðin heldur áfram að þyngjast. Ég skora á Hildi, nýja borgarstjórann okkar, að sýna kjark og leiða þetta mál áfram af krafti og dugnaði. Engar meiri endurskoðanir, engar fleiri tafir. Letsgo! Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Borgarlína Samgöngumál Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar