BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir skrifar 4. júní 2026 11:31 BRCA1 og BRCA2 arfberar eru skilgreindur hááhættuhópur með margfalt auknar ævilíkur á brjósta-, eggjastokka-, blöðruhálskirtils- og fleiri krabbameinum. Eftirlitið sem þeim er ráðlagt að sinna er metið læknisfræðilega nauðsynlegt til að greina krabbamein á læknanlegu stigi og er umfangsmeira en hefðbundin skimun. Arfberar fjármagna stóran hluta af því eftirliti sjálfir, þrátt fyrir að um sé að ræða eftirlit sem heilbrigðiskerfið hefur sjálft metið nauðsynlegt. Með því að sinna slíku eftirliti spara arfberar ríkissjóði umtalsverðan kostnað sem annars myndi hljótast af meðferðum við lengra gengnum krabbameinum. Eina eftirlitið þar sem búið er að fella niður greiðsluþátttöku næstum að fullu er fyrir brjóstamyndatöku sem nú kostar 500 krónur. Arfberar þurfa þó enn að greiða fyrir áhættueftirlit með blöðruhálskirtli, briseftirlit, segulómskoðun brjósta, skoðun hjá húðlækni vegna aukinnar áhættu á sortuæxlum og eftirlit hjá kvensjúkdómalækni 1-2x á ári vegna aukinnar hættu á krabbameini í eggjastokkum og lífhimnu. Með því að rukka fullt verð fyrir slíkt eftirlit er verið að setja fjárhagslega hindrun fyrir lífsnauðsynlega þjónustu. Snemmgreining er ódýrari en krabbameinsmeðferð Megintilgangur BRCA-eftirlits er að finna krabbamein eins snemma og hægt er, áður en það dreifir sér. Ein brjóstakrabbameinsgreining kostar heilbrigðiskerfið margar milljónir króna í: skurðaðgerðir, lyfjameðferðir, geislameðferðir, endurhæfingu, veikindaforföll og í einhverjum tilvikum örorku. Kostnaður við árlegt eftirlit er aðeins brot af þessum kostnaði, að undanskildum samfélagslega kostnaðinum við brottfall áður fullfrískra einstaklinga af vinnumarkaði í lengri eða skemmri tíma. Þegar ríkið rukkar BRCA arfbera fyrir eftirlitið er það í raun að innheimta gjald fyrir aðgerð sem sparar heilbrigðiskerfinu verulega fjármuni til lengri tíma, því það að greina krabbamein á fyrstu stigum skiptir öllu máli varðandi meðferð, batahorfur og lífsgæði og kostar auðvitað miklu minna fyrir ríkið, Norðurlöndin líta á BRCA eftirlit sem hluta af meðferð Í Danmörku, Noregi og víða í Svíþjóð er áhættueftirlit BRCA arfbera almennt skilgreint sem hluti af sérhæfðri krabbameinsþjónustu en ekki sem valfrjáls sérfræðiþjónusta. Íslendingar hafa yfirleitt byggt krabbameinsþjónustu sína á norrænum fyrirmyndum og því er eðlilegt að sömu meginreglur gildi hér. Erfðagalli sem veldur verulega aukinni krabbameinsáhættu á að veita rétt til nauðsynlegs eftirlits án fjárhagslegra hindrana. Það að greiðsluþátttaka ríksins við eftirlitið sé ekki meiri stangast á við samþykkta krabbameinsáætlun. Í aðgerðaáætlun fyrir árin 2025–2029 er sérstaklega lögð áhersla á: forvarnir, skimun og snemmgreiningu, jafnt aðgengi að krabbameinsþjónustu, staðlaða og heildstæða þjónustu. Ein af aðgerðunum í samþykktri aðgerðaáætlun snýr einmitt að áhættuskimunum. Þar kemur fram að stefnt sé að því að arfberum verði gert kleift að fara í skilgreinda áhættuskimun óháð efnahag, þ.e.a.s. gjaldfrjálst eða gegn vægu gjaldi. Markmiðið með aðgerðinni er að auka líkur á að krabbamein greinist snemma, sem og að styðja við ákvarðanir varðandi áhættuminnkandi aðgerðir. Þá er einnig vert að nefna að "jafnt aðgengi" getur ekki verið til staðar ef kostnaður getur haft áhrif á hvort einstaklingur mætir í eftirlit eða frestar því. Alþingi hefur þegar samþykkt að fjármagna krabbameinsáætlunina Í þingsályktun um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum kemur fram að taka skuli mið af áætluninni við gerð fjárlaga og fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. Þar sem áhættuskimun er skilgreind aðgerð hefur fjármögnun þegar verið samþykkt í stefnu stjórnvalda. Mikil skuld er þegar til staðar við arfbera varðandi eftirlit og utanumhald, því allt frá árinu 2015 þegar arfgerd.is opnaði og fjöldi einstaklinga fékk staðfestingu á að bera meingerð í BRCA hefur aldrei fylgt þessum hópi fjármagn. BRCA arfberar eru lítill hópur í stóra samhenginu BRCA arfberar eru aðeins lítið hlutfall þjóðarinnar. Kostnaður við að afnema komugjöld vegna þessa áhættueftirlits væri mjög lítill í samhengi við heildarútgjöld heilbrigðiskerfisins og er sparnaður til lengri tíma. Áhrifin sem það hefði aftur á móti fyrir einstaklingana væru mjög mikil. Með hliðsjón af ofangreindu fara Brakkasamtökin fram á að BRCA1 og BRCA2 arfberar njóti fullrar greiðsluþátttöku vegna alls læknisfræðilega skilgreinds áhættueftirlits. Þar undir falli myndgreining brjósta, segulómun, eftirlit hjá kvensjúkdómalækni, húðlæknaeftirlit og annað sérhæft eftirlit sem byggir á klínískum leiðbeiningum. Slík breyting er í samræmi við markmið íslenskrar krabbameinsáætlunar um forvarnir, snemmgreiningu og jafnt aðgengi að krabbameinsþjónustu óháð efnahag og búsetu. Þá er einnig óumdeilanlegur persónulegur, fjárhagslegur, samfélagslegur og sálfélagslegur hagur af því að arfberum sé gert kleift að sinna skilgreindu hááhættueftirliti. Höfundur er stjórnarkona í Brakkasamtökunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar