Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar 4. júní 2026 13:00 Ég óska borgarstjórn velfarnaðar í hennar störfum. Hún er líkleg til að vinna vel. Mér þykja málefnaáherslur meirihlutans að langflestu leyti prýðilegar og þar er byggt á góðum grunni. Mikilvægt er að fagmennska sé í fyrirrúmi við stjórn borgarinnar en um leið er ekki hægt að gera kröfu um að borgarfulltrúar hafi vit á öllum sköpuðum hlutum. Því ætti borgarstjórn að leita til bestu sérfræðinga á hverju sviði. Það er trygging fyrir árangri. Lítum til stjórnenda í meðalstóru fyrirtæki. Ekki er hægt að ætlast til þess að þeir hafi þekkingu á öllu en þeir eiga að hafa sýn og vita hvað þeir vilja. Til að stefna þeirra komist í framkvæmd á sem farsælastan hátt margborgar sig fyrir þá að fá leiðbeiningar frá sérfræðingum sem búa yfir fagþekkingu. Eins er það í stjórnmálum, þar þarf fagþekkingu. Dýralæknar eru til dæmis ekki bestu fagmenn í fjármálaráðuneytinu. Núverandi ríkisstjórn bar gæfu til að velja faglegan fjármálaráðherra, Daða Má Kristófersson, sem vinnur vel og skynsamlega. Það má greina samhljóm milli hans og Bjarna Benediktssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, en báðir eru sammála um að íslenskt atvinnulíf sé komið í ójafnvægi. Þar deila þeir áhyggjum og ættu í sameiningu, með fagmennsku í farteskinu, að geta unnið, ásamt fagfólki, gegn þessari óheillaþróun. Hvort sem er í stjórnmálum, atvinnulífi eða annars staðar skilar það miklu að velja faglega hæfa einstaklinga. Á sínum tíma bað Davíð Oddsson mig um að taka sæti í stjórn Handverks og hönnunar. Ég var ekki Sjálfstæðismaður, hafði aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, en það skipti Davíð engu máli. Hann var að leita að fólki sem hafði vit á hönnun. Ég tók boðinu enda vissi ég að ég hefði verið valinn á faglegum forsendum. Ég veit ýmislegt um hönnun og einbeiti mér að henni. Minn rekstur byggir á ákveðinni sýn og ég hef haldið stíft í hana. Um leið hef ég nýtt mér þekkingu sérfræðinga á öllum mögulegum sviðum. Fjármál þykja mér ekki skemmtileg og ég veit ekki mikið um þau, en þau eru lífsnauðsynleg í rekstri. Ég hef leitað til sama fjármálaráðgjafa í yfir fjörutíu ár. Sú samvinna hefur verið einstaklega farsæl. Allt sem ég ætla að gera og kostar peninga hef ég borið undir hann og hann sagt já eða nei. Ef hann segir nei ígrunda ég málið betur og endurskoða hugmyndir mínar og legg svo málið fyrir hann að nýju. Stundum segir hann já og stundum nei. Þegar hann segir já leiðbeinir hann mér. Á fleiri sviðum hef ég nýtt mér fagmennsku sérfræðinga, eins og til dæmis þegar ég skrifa greinar í fjölmiðla eða held ræður. Þá hef ég oft fengið blaðamann til að aðstoða mig við að púsla saman texta. Ég þekki af eigin reynslu og atvinnurekstri hversu mikilvægt er að nýta sér aðstoð fagmanna. Við meirihluta borgarstjórnar segi ég: Nú hafið þið tækifæri til að leita til fagmanna á öllum sviðum. Nýtið það tækifæri því það mun verða til heilla fyrir borgarbúa og framtíðina. Höfundur er stofnandi Epal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarstjórn Reykjavík Eyjólfur Pálsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar