„Markmiðinu er náð“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. júní 2026 18:20 Þorsteinn Halldórsson gat leyft sér að brosa eftir sigurinn í dag. Hulda Margret/Getty Images Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann sterkan 0-1 sigur er liðið mætti Úkraínu í undankeppni HM í dag.
Með sigrinum tryggði Ísland sér þriðja sæti riðilsins og áframhaldandi veru í A-deild. Úrslitin þýða einnig að leið Íslands á HM er mun viðráðanlegri en ella. „Tilfinningin er bara góð, en auðvitað var smá svona stress í lokin,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Íslands, í viðtali við RÚV eftir leikinn. „Það er bara oft þannig í svona 1-0 leikjum. Þetta er lítil forysta og það þarf ekki mikið að gerast til að þú missir hana. En heilt yfir fannst mér við vera sterkari aðilinn í þessum leik. Við áttum að komast í tvö, þrjú núll og klára þetta almennilega. En svona er þetta bara. Ísland á erfitt með að vinna Úkraínu með meira en einu marki. En markmiðinu er náð, það var númer eitt, tvö og þrjú.“ Þá var Þorsteinn ekkert allt of sáttur við vallaraðstæður sem boðið var upp á í Póllandi. „Völlurinn var lítið sleginn og þungur. Þú sást það bara á leikmönnum að það voru allir orðnir þreyttir. Það hafði smá áhrif, en svo byrjuðu þær bara af krafti og við ætluðum að vera tilbúnar í það og bregðast við því en það tók okkur smá tíma að ná almennilega áttum. En eftir það fannst mér við stjórna fyrri hálfleiknum.“ „Svo í seinni hálfleik var þetta bara hörkuleikur. Auðvitað fáum við þarna dauðafæri og allt það og í svona leikjum þá skiptir það máli. Þú þarft að nýta þau.“ Það var vissulega Thelma Karen sem misnotaði þetta dauðafæri sem Þorsteinn talaði um, en það var einnig hún sem skoraði mark Íslands í fyrri hálfleik. „Við töluðum um það að við vildum fá hlaup frá Thelmu á bak við. Þegar Sandra var að fara í skalla átti Thelma að taka hlaupið og aðrar kæmu undir. Leið eitt er oft árangursrík.“ Með sigrinum færðist Ísland skrefi nær því að komast á HM í Brasilíu á næsta ári, í fyrsta skipti í sögunni. „Auðvitað er það markmiðið, en það er ansi mikið eftir. Það er bara Spánn á þriðjudaginn og það er það eina sem við erum að spá í. Við þurfum að klára þennan riðil með sæmd og gera hlutina vel á þriðjudaginn. Það er það eina sem við erum að fókusa á núna og það er það sem við förum að vinna í á morgun,“ sagði Þorsteinn að lokum.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Sjá meira