Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 20:41 Havertz skoraði snemma og lagði svo upp sigurmarkið. Jacek Boczarski/Anadolu via Getty Images Þýskaland vann 2-1 sigur á Bandaríkjunum á Soldier Field í Chicago í æfingaleik í aðdraganda komandi heimsmeistaramóts karla í fótbolta.
Þjóðverjar komust yfir snemma leiks þökk sé marki Kai Havertz sem var að spila sinn fyrsta leik eftir tap Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Havertz skoraði einnig í þeim leik. Margir bjuggust við öruggum sigri Þjóðverja, þá sér í lagi eftir byrjunina, en nokkuð jafnræði var með liðunum í leiknum. Antonee Robinson, bakvörður Fulham á Englandi, jafnaði fyrir heimamenn með stórglæsilegu marki er hann negldi boltann á lofti. WHAT A STRIKE FROM ANTONEE ROBINSON 🚀🎥 @USMNT pic.twitter.com/PzCkNjbU9F— The Athletic (@TheAthletic) June 6, 2026 Það mark var á 37. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik. Enn var nokkuð jafnræði eftir hlé en Leroy Sané, kantmanni Galatasaray, tókst að skora það sem reyndist sigurmark leiksins á 57 mínútu leiksins, eftir stoðsendingu frá Havertz. Aðeins sauð upp úr í lok leiks eftir groddaralega tæklingu Timothy Weah, sonar George, á David Raum, leikmann Þjóðverja. Skömmu síðar var flautað af 2-1 úrslit leiksins. Um var að ræða síðasta leik Þjóðverja fyrir HM en þeir mæta Curacao í fyrsta leik þann 14. júní. Því næst er leikur við Fílabeinsströndina þann 20. og við Ekvador 25. júní. Bandaríkin hafa einnig spilað sinn síðasta leik fyrir mót. Liðið mætir Paragvæ í fyrsta leik 12. júní, Ástralíu þann 19. og Tyrkjum 25. júní.
HM 2026 í fótbolta Bandaríski fótboltinn Þýski boltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Fleiri fréttir Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Sjá meira