Formúla 1

Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt

Ágúst Orri Arnarson skrifar
George Russell klórar sér í höfðinu.
George Russell klórar sér í höfðinu. Joe Portlock/Getty Images

George Russell er undrandi á sjálfum sér eftir tímatökuna fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó. Hann skilur hreinlega ekkert í því hvað hann er hægur miðað við liðsfélaga sinn Kimi Antonelli.

Antonelli átti besta tímann og verður á ráspól þegar kappaksturinn hefst á eftir. Russell keyrði samskonar Mercedes bíl en varð í sjötta sæti tímatökunnar, 0.4 sekúndum á eftir Antonelli.

„Ég veit ekki alveg hvað er í gangi,“ sagði Russell við Sky Sports.

Russell vann fyrstu keppni tímabilsins og sprettkeppnina í annarri keppni tímabilsins en hefur ekki fagnað sigri síðan.

„Byrjun ársins var bara auðveld. Hver einasti hringur sem ég keyrði, hvort sem það var á æfingu, í sprettinum, tímatökunni, allt gekk upp. Síðustu þrjár keppnir hefur ekkert gengið upp… Þangað til ég geri breytingar mun það halda áfram að vera þannig.“

Russell átti frábært tímabil í fyrra en segir breytingar á Mercedes bílnum hafa haft áhrif á hann.

„Það eru klárlega hlutir sem hafa breyst og henta mínum ökustíl ekki eins vel og í fyrra. Við Kimi keyrum ekki eins. Ég ætla ekki að fara út í smáatriðin en það er augljóst að í fyrra hentaði bíllinn mér vel en í ár hentar hann honum betur. Þannig að ég þarf að aðlaga mig. Ég skil samt ekki hvernig tímabilið gat byrjað svona vel. Ég veit það ekki, ég er svolítið ringlaður bara.“

Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×