Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 14:15 Tekst Argentínu að verja heimsmeistaratitilinn? Það er ágætis gisk allavega að mati Atla Freys. Margir hafa gaman af því að giska á hvernig leikirnir á HM munu fara. Atli Freyr Hallbjörnsson er einn þeirra og hann er búinn að forrita getraunaleik sem allir Íslendingar geta tekið þátt í. Hundrað þúsund króna verðlaunaféð er í boði Atla og föður hans.
Giskó kallast leikurinn og gengur jú út á það að giska. Ekki bara hvernig stakir leikir fara heldur allt mótið í heild sinni. Leikurinn er metnaðarfullur og fylgir erlendum fyrirmyndum. „Ég var fyrst með þetta fyrir tveimur árum í kringum EM, þá setti ég upp síðu bara fyrir vini mína. Ég ætlaði að gera eitthvað svoleiðis aftur en svo datt mér í hug að gera þetta bara opið og bjóða fólki að taka þátt,“ segir höfundurinn og hönnuðurinn, Atli Freyr Hallbjörnsson. „Það er mikið af svona tippleikjum á netinu en þessi er hugsaður fyrir Íslendinga,“ bætti Atli við en vefurinn er einmitt allur á íslensku. Innan leiksins er hægt að stofna deildir, svipað og þekkist í hinum vinsæla Fantasy Premier League leik, þar sem vinnustaðir og vinahópar slá oft upp í keppni. Allir sem skrá sig til leiks eiga svo möguleika á stóra verðlaunapottinum. Atli Freyr og faðir hans, fjárfestirinn Hallbjörn Karlsson, greiða fyrir hundrað þúsund króna peningaverðlaun sem eru í boði. „Hugmyndin var fyrst að hafa 25 þúsund kall. Fyrst var það svoleiðis en svo langaði pabba að styrkja þetta. Hann bauðst til að hækka pottinn,“ segir Atli. „Þetta er ekki veðmálsvefur, og selur engar upplýsingar um notandann, hugmyndin er ekki að hagnast á þessu. Bara skemmtun,” skrifaði Hallbjörn um leikinn á Facebook.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía | Hvað gera strákarnir hans Zidane? Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Sjá meira