Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Árni Sæberg skrifar 8. júní 2026 14:48 Verksmiðja Elkem á Grundartanga. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf.
Nefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um verndaraðgerðir samþykkti ráðstafanir gegn innflutningi ríkja utan sambandsins á ákveðnum tegundum járnblendis sem inniheldur kísil eða mangan sem er talinn skaða evrópska framleiðendur í nóvember síðastliðnum. Slökkva á stærsta ofninum Hvorki Ísland né Noregur, sem eru aðilar að EES-samningnum og framleiðendur járnblendis, fengu undanþágu frá verndarráðstöfununum, sem sætti talsverðri gagnrýni á sínum tíma. Í fréttinni hér að neðan er útskýrt hvernig ráðstafananirnar virka: Elkem á Íslandi er eini framleiðandi járnblendis á Íslandi og strax varð ljóst að áhrif verndaraðgerðanna yrðu mikil á rekstur félagsins. Nú eru afleiðingarnar komnar í ljós en félagið hefur ákveðið að rifa seglin í sumar með því að draga úr framleiðslu um rúman þriðjung. Slökkt verður á stærsta ofni verksmiðju félagsins en þeir eru þrír í heildina. Breytti umhverfinu í grundvallaratriðum Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir í samtali við Vísi að verndarráðstafanirnar hafi lagst ofan á þegar erfiðar markaðsaðstæður. Þær feli í sér magntakmarkanir á útflutning til ESB, ásamt tollum á magni utan kvóta, sem í raun útiloki áframhaldandi sölu frá Íslandi á meðan kvótinn gildir. Þar sem um 75 prósent af framleiðslu Elkem Íslands á kísiljárni séu jafnan seld til stáliðnaðar innan ESB hafi þessar ráðstafanir veruleg áhrif á rekstrarskilyrði félagsins. Ákvörðunin hafi í grundvallaratriðum breytt viðskiptalegu umhverfi íslensks kísiljárns og skert aðgengi að mörkuðum verulega á einni nóttu. „Verndarráðstafanir af þessari stærðargráðu eru mikið áfall fyrir útflutningsdrifinn rekstur eins og okkar. Rekstrarhæfni okkar byggir á stöðugum og fyrirsjáanlegum aðgangi að alþjóðlegum mörkuðum. Þegar reglusetning lokar þeim mörkuðum hefur það strax veruleg áhrif.“ Bitnar á krökkunum Þá segir Álfheiður að Elkem Ísland leggi ríka áherslu á að verja þau störf sem fyrir eru í verksmiðjunni og tryggja eins og kostur er stöðugleika fyrir sitt starfsfólk. Áhrifin séu þó þegar farin að sjást í færri tækifærum til sumarstarfa og hafi þannig neikvæð áhrif á ungt fólk og aðra sem reiða sig á slík störf. „Við erum að ráða lítið sem ekkert sumarstarfsfólk, þetta bitnar á krakkagreyjunum.“ Hafa átt gott samtal við stjórnvöld Loks segir hún að félagið leggi áherslu á að þetta undirstriki hversu mikilvægt er að stjórnvöld styðji við samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Stóriðja sé ein af lykilstoðum hagkerfisins, skapi verðmæt störf, skili gjaldeyristekjum og styðji við atvinnulíf víða um land. „Við höfum átt gott samtal við stjórnvöld á þessu tímabili en þessar aðgerðir sýna líka hversu berskjölduð við erum gagnvart ákvörðunum sem eru teknar utan Íslands. Það er mikilvægt að stjórnvöld haldi áfram að vinna með okkur gagnvart ESB og skoði markvissar aðgerðir til að verja samkeppnishæfni og stöðugleika til lengri tíma.“
Stóriðja Evrópusambandið Verndarráðstafanir ESB vegna járnblendis Skattar, tollar og gjöld Hvalfjarðarsveit Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira