Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum. Innlent 19.7.2026 18:28
Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Vegagerðin hefur boðið út breikkun 5,6 kílómetra kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes milli Vallár og Hvalfjarðarvegar. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið 30. september 2029, eftir þrjú ár. Þetta er sex ára seinkun frá fyrri áætlunum. Innlent 19.7.2026 07:37
Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Ný samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sendir að sumu leyti jákvæð skilaboð til íbúa á Vesturlandi. Þar er meðal annars gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar, þjóðvegar 1, á kaflanum frá Hvalfjarðargöngum að Borgarnesi. Það eru jákvæð tíðindi enda er um einn fjölfarnasta kafla þjóðvegar landsins að ræða og leið sem þúsundir ökumanna fara um á hverjum degi. Skoðun 17.7.2026 13:32
Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent 11.7.2026 20:28
Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar. Innlent 30. júní 2026 14:54
Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa á Íslandsmiðum síðan 2023, voru dregnar á land snemma í morgun í Hvalfirði. Tvær langreyðar hafi verið veiddar í nótt. Innlent 23. júní 2026 14:32
Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur. Innlent 22. júní 2026 20:53
Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns. Innlent 19. júní 2026 19:03
Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn. Innlent 19. júní 2026 14:47
Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. Innlent 18. júní 2026 21:06
Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. Innlent 18. júní 2026 20:51
Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Hvalveiðiskipið Hvalur 9 sigldi í dag úr höfn með mótmælanda um borð. Skipið er nú á leið inn Hvalfjörðinn og við fylgjumst með í beinni í spilaranum hér að neðan. Innlent 18. júní 2026 19:11
Kompásar stilltir fyrir komandi hvalveiðar Lokaundirbúningur hvalvertíðar stendur yfir hjá Hval hf. og í dag var hvalbátunum tveimur, Hval 8 og Hval 9, siglt úr Reykjavíkurhöfn og um Faxaflóa í nokkrar klukkustundir. Töldu kunnugir að verið væri að prufukeyra gufuvélarnar og stilla kompása. Innlent 15. júní 2026 22:44
Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Formaður Starfsgreinasambandsins hefur miklar áhyggjur af ákvörðun forsvarsmanna Elkem um að rifa seglin verulega í sumar vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna járnblendis. Ákvörðunin komi til með að hafa vel launuð sumarstörf af tugum ungmenna. Viðskipti innlent 9. júní 2026 11:58
Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf. Viðskipti innlent 8. júní 2026 14:48
Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Frá klukkan 19 í kvöld og til tvö í nótt er stefnt á að fræsa og malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og annan kafla við Kollafjörð klukkan 21. Hringvegurinn verður því að hluta til lokaður í kvöld og í nótt. Innlent 31. maí 2026 07:55
Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar. Innlent 28. maí 2026 22:40
Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Löng helgi er fram undan á hvítasunnu og er helgin allajafna vinsæl helgi til ferðalaga. Vegagerðin bendir á á vefsíðu sinni á að lokanir verða í Hvalfjarðargöngum um helgina eins og síðustu helgar. Innlent 22. maí 2026 08:12
Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit A-listi Samhentrar sveitar náði fimm menn kjörna í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í dag. Í-listi Íbúahreyfingarinnar hlaut tvo menn kjörna. Innlent 17. maí 2026 03:29
Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Nýsköpunarverkefni Elkem á Grundartanga og Carbfix um að kanna möguleikann á að fanga og farga kolefni frá kísilverinu hlaut tæplega tvö hundruð milljón króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði. Alls var á fjórða hundrað milljóna króna veitt í verkefni til að draga úr losun stóriðju. Viðskipti innlent 7. maí 2026 11:05
Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Íslensk stjórnmál og samfélagsumræða árið 2026 einkennast um of af varnarbaráttu. Við ræðum um hvernig eigi að „laga“ kerfi sem eru löngu sprungin, hvernig eigi að „þétta“ byggð í kringum gamlar deilur og hvernig eigi að fjármagna innviði sem eru þegar orðnir úreltir á teikniborðinu. Reykjavík, okkar sögulega höfuðborg, er orðin gísl eigin vaxtarverkja. Skoðun 28. apríl 2026 08:01
Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Hafró telur að kanna þurfi áhrif magnesíumverkamiðju á Grundartanga á loftslag þar sem hún gæti dregið úr getu sjávar til þess að taka upp koltvísýring og þannig verið „andstæða loftslagsverkfræðilegra aðgerða“. Fyrirtækið segir starfsemina ekki eiga að hafa áhrif á kolefnisbindingu sjávar. Viðskipti innlent 27. apríl 2026 13:20
„Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Oddvitaefni Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit segir það ekki tortryggilegt að hann hafi sagt upp sem bæjarstjóri Akraness til að fara í framboð. Hann sé ekki í framboði til að sameina sveitarfélögin eins og mótframbjóðendur hafa gefið í skyn. Innlent 27. apríl 2026 12:47
Endurræsing hafin hjá Norðuráli Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði. Viðskipti innlent 24. apríl 2026 09:47
Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl. Innlent 7. apríl 2026 22:47