„Svaraðu spurningunni“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 8. júní 2026 16:24 Guðlaugi Þór fannst svör utanríkisráðherra ekki fullnægjandi í þingsal Alþingis í dag. vísir/vilhelm Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum
Nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er farið að hitna í kolunum í Alþingishúsinu. Málið átti hug þingmanna í óundirbúnum fyrirspurnatíma á þinginu í morgun og þar sakaði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögnum. Spurði hann ráðherrann hvort hefja ætti aðildarviðræður eða hvort það ætti að ljúka þeim. „Hvort er það? Sömuleiðis eru hér stjórnarliðar sem hvað eftir annað birta myndbönd þar sem þeir auglýsa afslátt af pizzum, afslátt af pizzum ef við göngum í Evrópusambandið. Afslátt af pizzum hvorki meira né minna. Svo kemur hæstvirtur ráðherra og segir: Þetta er allt mjög mismunandi, það er bara allur gangur á öllu eftir því um hvaða land ræðir. En það er búið að lofa okkur hérna 25 prósent lækkun á matvælaverði ef við göngum inn.“ Þá spurði Guðlaugur ráðherrann út í atvinnuleysi. „Er hæstvirtur ráðherra sammála Gylfa Zoega, fulltrúa Viðreisnar í Seðlabankanum, þar sem hann talar um að það sé eftirsóknarvert að fólk þurfi að flytja frá landinu til að sækja sér vinnu?“ Þorgerður sagði að þingið hefði breytt spurningunni yfir í að hefja samningaviðræður á ný. „Mér finnst erfitt að heyra að háttvirtur þingmaður vilji ekki gefa ungu fólki kost á því þegar það er búið að taka ákvörðun um að kaupa íbúð, öðruvísi en að þurfa að borga hana þrisvar sinnum. Það er veruleikinn sem háttvirtur þingmaður vill,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. „Svaraðu spurningunni,“ greip Guðlaugur Þór inn í. „Ég er að svara spurningunni, ég er búin að svara henni í fyrra svari og mér finnst miður að mín svör eru ekki alltaf eftir hentugleika fyrir háttvirta þingmenn, þannig er það.“ Frammíköll hófust á ný og þurfti forseti Alþingis að skerast í leikinn. „Ég bið háttvirta þingmenn að halda ró sinni hér í þingsal,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti þingsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Evrópusambandið Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira