Neytendur

Inn­kalla vegna að­skota­hlutar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þykkvabæjar hefur kallað inn kartöflugratín.
Þykkvabæjar hefur kallað inn kartöflugratín.

Þykkvabæjar ehf. hefur ákveðið að innkalla og taka úr sölu Þykkvabæjar Kartöflugratín í ostasósu. Aðskotahlutur fannst í vörunni.

Um er að ræða pakkningu með 550 grömmum af kartöflugratíni í framleiðslulotu sem er best fyrir 17. júlí 2026. Strikamerkið er 5690599003060.

Hægt er að festa kaup á vörunni í verslunum um allt land.

Þykkvabæjar vinnur að því að fjarlægja vöruna úr hillum verslana samkvæmt fréttatilkynningu. Þeir sem hafa keypt umrædda vöru skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila henni annaðhvort í verslunina sem varan var keypt í eða í vöruhús Þykkvabæjar.

„Þykkvabæjar biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×