Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar 9. júní 2026 17:02 Óalandi og óferjandi var stundum sagt á bernskudögum mínum um þá sem töldust vart húsum hæfir vegna óþekktar. Þá var óþekkt oft talin nægileg skýring á því að sum börn höfðu ekki hemil á hegðun sinni. Í dag eru hegðunarerfiðleikar barna oftar skýrðir með ýmsum greiningum, allt frá ADHD til lestrarörðugleika og annarra þroska- eða námsfrávika. Ég ætla ekki að gera lítið úr mikilvægi greininga en ef litið er yfir sviðið og spurt hvort þær hafi leyst vandann er ólíklegt að margir séu þeirri fullyrðingu sammála.Á undanförnum árum hafa sífellt fleiri kennarar, skólastjórnendur og foreldrar lýst áhyggjum af vaxandi hegðunarvanda og ofbeldishneigð meðal barna og ungmenna. Nýleg skýrsla Skólastofunnar, eftir kennslufræðingana Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að margir sem starfa í skólum upplifa fjölgun alvarlegra hegðunarmála og telja úrræði samfélagsins ekki svara þeirri öfugþróun.Ummæli eins kennara í skýrslunni eru lýsandi:„Það er meira ofbeldi ... Líkamlegt ofbeldi … mörkin þeirra eru allt annars staðar, hvað þau leyfa sér að gera … truflun í tíma hefur alltaf verið til en að beita aðra ofbeldi, það hefur aukist … . Það sem þau sjá á TikTok, normið er orðið óeðlilegt.“Þetta er ekki séríslenskt vandamál. Í Svíþjóð hefur aukið ofbeldi meðal ungmenna orðið svo áberandi að þar er nú rætt af fullri alvöru um að lækka sakhæfisaldur barna. Svipuð umræða heyrist víðar í Evrópu. Þessar hugmyndir svara samt ekki því sem er kjarni málsins: Hvers vegna sýna sífellt fleiri börn ofbeldishegðun og hvað getum við gert til að breyta því?Það er of einfalt að benda aðeins á TikTok eða aðra samfélagsmiðla. Mér sýnist þvert á móti að rannsóknir á þessu sviði bendi til þess að hér sé um margþættan vanda að ræða. Samfélagsmiðlarnir eru hluti af myndinni, en einnig foreldrar, skólar, geðheilbrigðiskerfi, veikari félagsleg tengsl, aukin einangrun, einelti og ótal margt annað.Stóra verkefnið sem samfélagið allt þarf að ráðast í er að færa áhersluna frá því að bregðast við afleiðingunum yfir í að afstýra þeim. Samkvæmt títtnefndri skýrslu þýðir það að efla snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur, stytta bið eftir sálfræðiþjónustu, greiningu og ráðgjöf, ásamt því að auka samstarf skóla, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og barnaverndar áður en vandinn verður að lögreglumáli.Á einum mannsaldri hefur samfélagið breyst á ógnarhraða. Fyrir nokkrum áratugum voru flest börn umkringd fjölmörgum fullorðnum á degi hverjum en í dag verja mörg börn meiri tíma ein í stafrænum heimi og félagsleg tengsl þeirra við fullorðna hafa minnkað. Stafræna umhverfið er tiltölulega nýtt og áhrif þess á börn eru enn að mörgu leyti óljós. Samt er ekki trúverðugt að halda því fram að það hafi engin áhrif á viðmið þeirra, samskipti eða sjálfsmynd, í ljósi þess að sum börn verja þar mörgum klukkustundum á hverjum degi. Við erum fyrsta kynslóð foreldra sem elur upp börn í heimi þar sem niðurlæging, hótanir og ofbeldi geta borist um allan heim á örfáum sekúndum. Það eitt ætti að kalla á rautt flagg.Stundum heyrist í umræðu um vanda óstýrilátu barnanna í grunnskólum að þar sé einkum um foreldravanda að ræða. Að sjálfsögðu bera foreldrar ábyrgð. En margir þeirra búa við mikið álag, langa vinnudaga og uppeldi barna virðist sífellt flóknara verkefni. Samfélagið þarf að veita þeim raunverulegan stuðning í formi ráðgjafar, foreldrafræðslu og snemmtækrar aðstoðar þegar vandamál koma upp. Á þetta er bent í fyrrnefndri skýrslu Skólastofunnar.Sama gildir um kennara. Í skýrslunni kemur skýrt fram að þeir kalla ekki fyrst og fremst eftir hærri launum eða minni kennsluskyldu. Þeir kalla eftir hjálp. Margir þeirra segja blátt áfram að þeir ráði ekki einir við sífellt flóknari hegðunarmál. Þess vegna leggja skýrsluhöfundar til að fjölga sérfræðingum í skólunum; atferlisfræðingum, félagsráðgjöfum, sálfræðingum og sérkennurum. Kennari getur ekki verið kennari, sálfræðingur, félagsráðgjafi, fjölskylduráðgjafi og öryggisvörður á sama tíma.Yfirstandandi skólaár tekur senn enda. Þessa dagana eru börn og unglingar að kveðja skólann sinn eftir veturinn. Næsta haust mæta kennarar aftur nemendum sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda. Þeir hafa sagt skýrt að þeir ráði ekki einir við verkefnið. Væri ekki skynsamlegt að hlusta á þá og nýta sumarið til að finna raunhæfar lausnir?Áhrifaríkari fjárfesting er vandfundin.Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Gunnar Salvarsson Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar