HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júní 2026 09:02 Ronaldo með hræðilegu klippinguna og heimsbikarinn eftir sigurinn í úrslitaleiknum 2002. Getty/Neal Simpson Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst í kvöld en Vísir hefur talið niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við þess þegar Ronaldo leiddi Brasilíumenn til heimsmeistaratitilsins 2002.
HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu var svo sannarlega mót hins brasilíska Ronaldo. Hann var markahæsti leikmaður mótsins með átta mörk og heimsmeistari eftir að hafa skorað bæði mörkin í 2-0 sigri á Þjóðverjum í úrslitaleiknum. O lendário corte de cabelo do Ronaldo em 2002. pic.twitter.com/tHak1QGr7x— Curiosidades Brasil (@CuriosidadesBRL) May 24, 2026 Fjórum árum fyrr hafði Ronaldo einnig verið allt í öllu þegar Brassarnir komust í úrslitaleikinn þar sem þeir steinlágu óvænt 3-0 í úrslitaleiknum. Stórundarlegt heilsufarsvandamál kom upp fyrir úrslitaleikinn gegn Frakklandi. Ronaldo átti ekki að vera í byrjunarliðinu eftir að hafa fengið flogakast á hótelherberginu sínu. Hann var hins vegar settur í byrjunarliðið eftir að læknar fundu ekkert að stjörnumarkaskoraranum. Hann spilaði ekki vel og franska liðið vann leikinn örugglega. Fjórum árum síðar var pressan mikil á Ronaldo að bæta fyrir hörmungarnar í París. Hann var líka að koma til baka eftir hræðileg hnémeiðsli á þessum árum sem liðu á milli heimsmeistaramótanna. Það var hins vegar afar sérstök klipping hans sem stal senunni þegar spennan var hvað mest á mótinu. Hann snoðaði nær allan hausinn en skildi eftir hár fremst á kollinum. „Allir voru að tala stanslaust um meiðslin í fætinum á mér og efast um að ég gæti spilað í undanúrslitunum,“ sagði Ronaldo þegar hann rifjaði upp dagana eftir að hann haltraði af velli í sigri gegn Englandi í fjórðungsúrslitum. „Ég var orðinn veikur og þreyttur á að heyra um þetta. Þannig að ég klippti hárið á mér svona, spurði liðsfélaga mína hvað þeim fyndist og þeir sögðu: ‚Þetta er hræðilegt! Þú getur ekki verið með þetta svona,“ sagði Ronaldo. „Ég hugsaði með mér: ‚Þetta gæti virkað‘. Og viti menn, blaðamennirnir gleymdu meiðslunum mínum samstundis. Það eina sem þeir gátu spurt um var hárið á mér. Ég gat slakað á,“ sagði Ronaldo. Ronaldo, sem var nú laus við áhyggjur þökk sé klippum varamarkvarðarins Dida, skoraði eina markið gegn Tyrklandi og kom Brasilíu í úrslitaleikinn. „Þetta var skelfilegt!“ viðurkenndi hann síðar enda varð þetta um leið vinsælasta klipping drengja út um allan heim. „Ég bið allar mæður afsökunar sem sáu syni sína með sömu hárgreiðslu,“ sagði Ronaldo. 9 days until the World Cup! ⚽️ One of the greatest strikers football has ever seen, Ronaldo Nazário, wore No. 9:🇧🇷 2 FIFA World Cup titles🇧🇷 Golden Boot winner at the 2002 FIFA World Cup🇧🇷 One of the most feared forwards of his generationR9 made greatness look inevitable… pic.twitter.com/ua5qKybKdc— Hard Rock Bet (@HardRockBet) June 3, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira