Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. júní 2026 10:01 Swae Lee hefur gefið út nokkra af stærstu slögurum síðustu ára. Getty Rapparinn og tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur fyrir lögin „Unforgettable“ með French Montana og „Sunflower“ með Post Malone og sem annar helmingur rapptvíeykisins Rae Sremmurd, heldur tónleika í Austurbæjarbíói þann 15. ágúst næstkomandi.
Swae Lee tilkynnti í dag um Evróputúr sinn í kjölfarið á útgáfu breiðskífunnar Same Difference sem kom út í apríl. Á túrnum kemur Lee fram í Varsjá í Póllandi, Heidelberg í Þýskalandi og Barcelona á Spáni áður en hann kemur til Íslands í ágúst. Þetta er í annað sinn sem Swae Lee kemur til landsins en hann kom fram með bróður sínum í Rae Sremmurd í Laugardalshöll í ágúst 2015. Þeir bræður voru þá þegar orðnir stórt nafn í hipphoppheiminum með útgáfu fyrstu plötu sinnar, SremmLife. Þeir bræður gáfu saman út fjórar plötur á árunum 2015 til 2023 og fjölmarga gríðarvinsæla slagara á borð „Black Beatles“ með Gucci Mane, „No Type“, „No Flex Zone“ og „Swang“. Swae Lee sneri sér að eigin lagasmíðum og sólóferli, gaf út fyrstu sólóplötu sína, Swaecation, árið 2018 og fylgdi henni eftir með Same Difference fyrr á þessu ári. Swae Lee finnst ekki leiðinlegt að sýna á sér bringuna. Fyrrnefndar smáskífur Lee, „Unforgettable“ og „Sunflower“, eru meðal stærstu poppsmella aldarinnar og hið síðarnefnda er eina lagið sem hefur hlotið tvöfalda demantsviðurkenningu frá félagi hljómplötuframleiðanda í Bandaríkjunum. Lee hefur þar að auki gert lög með ýmsum súperstjörnum, þar á meðal Beyonce, Travis Scott og Drake. Swae Lee vakti athygli í vor þegar hann kom fram á Coachella og voru tónleikar hans einn af hápunktum hátíðarinnar. Hann kemur því í fantaformi til landsins í ágúst með áratug af slögurum í farteskinu. Skipuleggjandi tónleikanna eru Garcia Events en miðasala á tónleika Swae Lee hefst kl. 10 á morgun, föstudaginn 12. júní.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Bræðurnir í Rae Sremmurd í eftirpartýi með Gísla Pálma "Við erum lentir á Ísland og hér er komið vel fram við okkur,“ segir Khalif "Swae Lee“ Brown á Snapchat-reikningi hljómsveitarinnar Rae Sremmurd sem hélt tónleika í Laugardalshöllinni í gær. 28. ágúst 2015 10:36 Slim Jimmy í Rae Sremmurd fótbrotnaði á tónleikum Myndband af atvikinu hefur fengið mikil viðbrögð á Twitter. 6. júní 2015 22:40 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Bræðurnir í Rae Sremmurd í eftirpartýi með Gísla Pálma "Við erum lentir á Ísland og hér er komið vel fram við okkur,“ segir Khalif "Swae Lee“ Brown á Snapchat-reikningi hljómsveitarinnar Rae Sremmurd sem hélt tónleika í Laugardalshöllinni í gær. 28. ágúst 2015 10:36
Slim Jimmy í Rae Sremmurd fótbrotnaði á tónleikum Myndband af atvikinu hefur fengið mikil viðbrögð á Twitter. 6. júní 2015 22:40