McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2026 17:43 Kieran McKenna kom Ipswich Town aftur í hóp þeirra bestu í vor en nú er hann orðaður við Fulham. Getty/Paul Harding Ipswich Town tilkynnti í kvöld að Kieran McKenna hefði ákveðið að hætta óvænt sem knattspyrnustjóri og yfirgefa félagið.
Þessi fertugi stjóri tók við stjórnartaumunum hjá liðinu árið 2021 og hefur komið liðinu tvisvar upp í ensku úrvalsdeildina, þar á meðal í vor. Ipswich mun því leika í efstu deild tímabilið 2026–27 eftir að hafa lent í öðru sæti í ensku B-deildinni á síðasta tímabili. 📰 Kieran McKenna will step down as Ipswich Town Manager after five seasons at the club. Kieran has made the decision to step away from football management and dedicate time to his family, having been at the forefront of one of the most successful eras in the club’s history.— Ipswich Town (@IpswichTown) June 10, 2026 McKenna hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Fulham en sagði að brottför hans frá Portman Road væri vegna löngunar hans til að taka sér hlé frá íþróttinni og verja meiri tíma með fjölskyldu sinni. „Mér finnst þetta vera rétti tíminn fyrir mig til að stíga til hliðar,“ sagði McKenna. „Ég geri það með miklu stolti yfir þeim ótrúlegu framförum sem við höfum náð og með mikilli von og bjartsýni fyrir framtíð félagsins. „Eftir að hafa gefið svo mikið af mér í þetta hlutverk síðustu fimm tímabil hlakka ég nú til að taka mér hlé frá stjórnun og verja tíma með fjölskyldu minni, sem hefur staðið með mér á hverju skrefi á ferli mínum hingað til.“ Brottför McKenna þýðir að sjö lið koma með nýjan knattspyrnustjóra þegar nýtt tímabil fer af stað. Super Kieran McKenna. 💙 pic.twitter.com/zdsKGqt5HQ— Ipswich Town (@IpswichTown) June 10, 2026
Enski boltinn Fulham FC Ipswich Town FC Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira