Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2026 21:00 Christian Pulisic er stærsta stjarna bandaríska landsliðsins en hann er þó ekki talinn vera í hópi hundrað bestu fótboltamanna heims. Getty/John Dorton Mauricio Pochettino, þjálfari karlalandsliðs Bandaríkjanna, sagði að lið hans gæti unnið heimsmeistaramótið í fótbolta í ár þrátt fyrir að eiga enga leikmenn sem eru á lista yfir hundrað bestu leikmenn heims. „
Við erum Bandaríkin og við keppum við Belgíu og Portúgal,“ sagði bandaríski þjálfarinn eftir tvö töp í vináttuleikjum í mars. „Ég held að Belgía og Portúgal eigi örugglega nokkra leikmenn á topp 100 listanum. Ég held að við eigum enga,“ sagði Pochettino. Engir Bandaríkjamenn voru á topp 100 listanum þegar The Guardian birti árlegan lista sinn í desember. Efsti maður í 116. sætinu Christian Pulisic var í 116. sæti í kosningu dómnefndar sem samanstóð af 219 fyrrverandi leikmönnum, þjálfurum, tæknifólki og fjölmiðlafólki. Tim Weah var næstur í 183. sæti. Poch: U.S. can win WC despite no top 100 playersUnited States men's national team coach Mauricio Pochettino said his team can win the World Cup despite not having any players ranked among the top 100.https://t.co/WW0XTogZ2Q— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) June 10, 2026 Spánn átti fjórtán leikmenn á topp 100 listanum, Frakkland tíu, Brasilía og England níu hvor þjóð og Argentína og Portúgal átta hvor þjóð. Að mínu auðmjúka mati „Ég held að hæfileikar okkar séu ekki langt frá – eða mikið minni en hjá nokkurri annarri þjóð, að mínu auðmjúka mati,“ sagði Jozy Altidore, fyrrverandi bandarískur framherji. „Ég held að við séum alveg jafn hæfileikaríkir. Þannig að ég er þessi klikkaði gaur. Ég hef trú á því og ég veit að leikmennirnir hafa trú á því, en af hverju ekki? Af hverju ekki við?“ Leikmenn og starfslið Bandaríkjanna hugsa stórt og vonast til að landsliðið geti unnið sinn fyrsta heimsmeistaratitil eða að minnsta kosti komist í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1930. Bandaríkjamenn þurfa enn að sanna sig fyrir stórum hluta fótboltaheimsins. „Við viljum gera þetta fyrir okkur sjálfa. Við viljum gera þetta fyrir okkar eigið land. Við þurfum ekki að sanna neitt fyrir neinum öðrum,“ sagði Pulisic. Eigum virkilega góða leikmenn „Við eigum góða leikmenn, virkilega góða leikmenn sem spila með toppliðum í heiminum. Við eigum gott lið og, já, við ætlum að gera okkar besta til að sanna okkur, meira en nokkuð annað.“ Tyler Adams, fyrirliði árið 2022 og helsti varnarsinnaði miðjumaður liðsins, lítur svo á að markmiðið sé að komast jafn langt og nokkurt lið hefur áður komist.“ „Mér finnst bara vera langt síðan við slógum út stórt lið,“ sagði hann. „Ég held að við þurfum að reyna að finna það í karakter okkar og ég held að okkur takist það.“ Draumar og veruleiki hafa rekist á hjá Bandaríkjunum á heimsmeistaramótinu. Bandaríkjamenn hafa aðeins unnið einn af átta leikjum í útsláttarkeppni HM, en eini sigurinn var gegn nágrönnunum í Mexíkó árið 2002 áður en liðið tapaði fyrir Þýskalandi í fjórðungsúrslitum. „Af hverju ekki við?“ Síðan þá hafa þeir tapað í sextán liða úrslitum árin 2010, 2014 og 2022, komust ekki upp úr riðlakeppninni árið 2006 og komust ekki einu sinni á mótið árið 2018. Þrátt fyrir skort á afrekaskrá sagði Pochettino við leikmenn í mars að þeir gætu unnið heimsmeistaratitilinn. „Af hverju ekki við? Af hverju ekki við? Af hverju ekki við?“ sagði hann. „Við þurfum virkilega að trúa því að við getum náð þangað. Okkur þarf að dreyma,“ sagði Pochettino.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira