Þá roðnaði Beckham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2026 07:03 David Beckham og Zlatan Ibrahimovic þegar þeir voru liðsfélagar hjá Paris Saint-Germain. Getty/John Berry Zlatan Ibrahimović sagði skemmtilega sögu af David Beckham þegar þeir voru liðsfélagar hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.
Zlatan sagði þá frá því þegar David Beckham skammaðist sín mikið. Þegar þeir voru saman í París Saint-Germain þá söng Beckham enska þjóðsönginn. „Hann er enginn góður söngvari, hvað sem þið haldið,“ sagði hinn 44 ára gamli Zlatan Ibrahimović þegar hann var gestur í þættinum Jimmy Kimmel Live. Aftonbladet sagði frá viðtalinu. Zlatan sagði sögu af vígsluathöfninni fyrir nýja leikmenn í Paris Saint-Germain. Þeir eiga að syngja fyrir framan allt liðið. „Þú verður að gera það“ „Zlatan, ég geri það ekki. Gleymdu því,“ sagði David Beckham. „Þú verður að gera það,“ svaraði Zlatan Ibrahimović en svo liðu þrír dagar. „David, þú verður að syngja núna,“ þrástagast Zlatan Ibrahimović. „Ókei,“ sagði David Beckham og stóð upp. Það endaði þó með því að ofurtöffarinn Beckham roðnaði upp fyrir haus. – Hann sagði við mig „þú verður að hjálpa mér“. Þá byrjaði hann að syngja enska þjóðsönginn. Ég horfði á hann og sagði „vinur minn, ég kann ekki að syngja enska þjóðsönginn“. Allir horfðu á hann. Hann varð rauður í framan og leið óþægilega, sagði Zlatan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=AlZcndegE8M">watch on YouTube</a> Á meðan á HM í fótbolta stendur mun sænska goðsögnin starfa sem sérfræðingur hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox. Ég er dýr „Þeir borga mér mikið. Ég er ekki ókeypis. Ég er dýr. Ég er mjög dýr,“sagði Zlatan. „Ég er sá eini sem er ekki með handrit. Ég er bara þarna til að vera ég sjálfur. Þeir vilja Zlatan. Ég mun gefa þeim Zlatan. Þegar hinir eru að greina leikina mun bandaríska þjóðin sofna. Ég er þarna til að vekja þá. Þeir sem þekkja mig vita að ég er manneskja án síu, ég mun segja það sem mér finnst og hugsa. Þetta eru mínar skoðanir, hvort sem þér líkar það eða ekki er undir þér komið,“ sagði Zlatan eins og honum einum er lagið. Ég myndi segja Zlatan Zlatan segir að hann muni vera harður við Frakkland og að bandarískir fótboltaaðdáendur séu linir í samanburði við þegar hnífum var kastað í þá á vellinum sem andstæðinga í Marseille. Jimmy Kimmel spurði hvor væri betri, Leo Messi eða Cristiano Ronaldo. „Eftir að Leo Messi vann HM þá setti hann rána hátt og lokaði dyrunum,“ sagði Zlatan en sá svo eftir því og varð aftur hinn raunverulegi Zlatan. „Hvor er betri, Messi eða Ronaldo? Ég myndi segja Zlatan,“ sagði Zlatan.
HM 2026 í fótbolta Franska Gvæjana Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira