Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Freyja Þórisdóttir skrifar 11. júní 2026 18:52 Christine Lagarde, seðlabankastjóri Seðlabanka Evróðu, ávarpar fjölmiðla á blaðamannafundi í Frankfurt í Þýskalandi. AP Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg.
Stýrivextir Seðlabanka Evrópu hækka um 0,25 prósentustig við breytingu, úr 2,0 prósentum í 2,25 prósent. Hækkunin í dag er fyrsta hækkun bankans síðan í september 2023 en eftir um viku munu seðlabankar Bandaríkjanna, Japan, Englands og fleiri leiðandi stofnana taka stefnuákvarðanir. Er þetta meðal þess sem fram kemur í samantekt fréttaveitunnar Reuters. Þar segir einnig að búast megi við tveimur hækkunum til viðbótar á þessu ári. „Stríðið í Miðausturlöndum veldur verðbólguþrýstingi og ákvörðunin um að hækka vexti er traust í ljósi ýmissa sviðsmynda sem kortleggja hvernig áfallið gæti þróast,“ er haft eftir Christine Lagarde seðlabankastjóra í opnunaryfirlýsingu sinni, í greininni. Hagfræðingar um allan heim hafi undanfarið deilt um hvort réttlætanlegt sé að herða peningastefnuna en víða um Evrópu er verðbólga vel yfir 2 prósenta markmiði bankans og hagvöxtur lítill. Viðbúin ákvörðun Samkvæmt heimildum Reuters höfðu hagfræðingar búist við ákvörðununni um hækkun vaxta og sögðu hana aðallega miða að því að halda verðbólguvæntingum í skefjum og verja trúverðugleika Seðlabanka Evrópu eftir að hann var seinn að bregðast við verðbólguskoti eftir heimsfaraldurinn árið 2022. Paul Donovan, aðalhagfræðingur hjá UBS Global Wealth Management, sagði meðal annars að bankinn væri að gera „mistök“ og væri fastur í „gagnslitlu hugarfari frá 2022“, og vísaði þar til verðbólguskotsins sem fylgdi í kjölfar lokana vegna kórónuveirufaraldursins 2019.
Verðlag Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Evrópusambandið Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira