Veður

Mögu­leiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuð­borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Það kemur til með að létta til þegar líður á daginn og fer veður hlýnandi.
Það kemur til með að létta til þegar líður á daginn og fer veður hlýnandi. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir norðaustan og norðan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag. Það hefur verið rigning á köflum sunnan- og vestanlands í nótt, en þegar kemur fram á daginn á að létta til með hita 13 til 20 stig.

Á vef Veðurstofunnar segir að það sé sem sagt möguleiki á að fyrstu tuttugu stig ársins mælist í dag og að helst séu líkur á því á Suðurlandi eða á höfuðborgarsvæðinu.

„Í norðausturfjórðungi landsins og við norðvesturströndina er annað uppi á teningnum í dag. Þar verður þungbúið veður með þokusúld og 6 til 10 stiga hita.

Hitaspákort klukkan 17 í dag.Veðurstofan

Á morgun er spáð breytilegri átt 3-8 og víða bjartviðri á landinu. Skýjað á Austurlandi í fyrramálið, en ætti að rofa til þar eftir hádegi. Hiti yfirleitt á bilinu 12 til 18 stig á morgun.

Áfram rólegt veður á sunnudag, en heldur meira af skýjum á lofti og stöku síðdegisskúrir gætu látið á sér kræla á Suður- og Vesturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s. Víða bjartviðri á landinu og hiti 12 til 18 stig, en sums staðar þokuloft og svalara við norður- og austurströndina.

Á sunnudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum á landinu og stöku síðdegisskúrir á Suður- og Vesturlandi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á suðvestanverðu landinu.

Á mánudag: Austlæg átt 3-10 og víða skýjað, líkur á skúrum sunnantil á landinu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 með lítilsháttar rigningu norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.

Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn) og fimmtudag: Norðan- og norðaustanátt. Dálítil væta norðan- og austanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×