„Hafið þið ekki horft á leikina?“ Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2026 16:31 Cristiano Ronaldo færði forsætisráðherranum Luís Montenegro treyju áður en portúgalski hópurinn hélt á HM í dag. Getty/Horacio Villalobos Portúgalski landsliðsfyrirliðinn Cristiano Ronaldo fullvissaði þjóð sína um að hann væri í toppstandi, áður en portúgalski hópurinn fór upp í flugvél á leið til Flórída á heimsmeistaramótið í fótbolta í dag.
Eftir lokaæfingu landsliðsins heima í Portúgal tók hinn 41 árs gamli Ronaldo sér stöðu fyrir framan hljóðnema og svaraði spurningum fjölmiðlamanna, fyrir sitt sjötta og væntanlega síðasta heimsmeistaramót á ferlinum. Þar var hann meðal annars spurður út í líkamlegt ástand og virtist undrandi á því. „Við vitum að HM er alltaf sérstök keppni, rétt eins og EM. Og við förum inn í þessa keppni með miklar vonir. Líkamlega? Líkamlega er ég í lagi. Hafið þið ekki horft á leikina? Ég held að ég sé í lagi. Það kemur engum á óvart,“ sagði Ronaldo. Á meðan að aðrir leikmenn Portúgals spiluðu bara hálfleik hver um sig í 2-1 sigrinum gegn Nígeríu í fyrrakvöld þá spilaði Ronaldo fram á 64. mínútu, Áður hafði hann spilað fyrri hálfleikinn í 2-1 sigri gegn Síle en hann var þó ekki á meðal markaskorara í leikjunum. Cristiano Ronaldo:“Physically I’m fine, haven’t you been watching the games? There’s no surprise at all!” pic.twitter.com/DDtBSXBBIc— Al Nassr Zone (@TheNassrZone) June 12, 2026 Portúgal byrjar HM á að mæta Austur-Kongó á lýðveldisdegi Íslendinga, 17. júní, áður en liðið mætir Úsbekistan og svo Kólumbíu. Allir reikna með því að portúgalska liðið fljúgi upp úr sínum riðli og Portúgölum er spáð velgengni á mótinu enda með stjörnum prýtt lið. Ronaldo kvaðst bjartsýnn en sagði líka: „Það eru þættir sem við getum ekki stjórnað. Þetta er mjög góð kynslóð. Ég tel að þetta sé kynslóð sem muni færa portúgölsku þjóðinni mikla gleði.“ Landsliðsþjálfarinn Roberto Martínez er vel meðvitaður um að portúgalski hópurinn er nú með drauma og vonir heillar þjóðar á herðunum. „Í fyrsta lagi vil ég þakka fyrir stuðninginn sem við fengum í vináttuleikjunum tveimur hér, því sá styrkur var nákvæmlega það sem við þurftum fyrir sálfræðilegan undirbúning hópsins. Svo takk fyrir það. Og svo skulum við bara segja að við erum undirbúin, við munum gefa allt, við munum berjast. Við höfum ótrúleg liðsgildi, við höfum ferðatösku fulla af draumum allra Portúgala. Við berum ábyrgðina en við munum berjast saman og þegar við erum saman erum við betri,“ sagði Martínez.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira