Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2026 21:34 Heimir Hallgrímsson þarf að sætta sig við að spila einn heimaleikinn á hlutlausum velli. Getty/Vaughn Ridley Írar hafa ákveðið að fórna einum heimaleikja sinna í Þjóðadeildinni í haust vegna mótmæla en umdeildur leikur gegn Ísrael verður færður á hlutlausan völl.
Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands en þarf að sætta sig við það að spila einum heimaleik færra. Heimaleikur Írlands gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta þann 4. október verður ekki spilaður í Dublin eins og áætlað var. Þetta staðfesti írska knattspyrnusambandið í dag. Leikurinn, sem upphaflega átti að fara fram á Aviva Stadium í Dublin, verður færður á hlutlausan völl og spilaður án áhorfenda. Sambandið vísar til „rekstrarlegra áskorana“ í tengslum við leikinn. Republic of Ireland’s home match against Israel on October 4 will be moved from Dublin to a neutral venue, the Football Association of Ireland (FAI) has said.UEFA has approved the FAI’s request to move the Nations League game to a neutral overseas venue, which is yet to be… pic.twitter.com/uwA0XlgLL2— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 12, 2026 Málið kemur í kjölfar krafna frá aðgerðasinnum sem styðja Palestínu um að Írland sniðgangi leikina gegn Ísrael. Í nýlegum vináttulandsleik gegn Katar köstuðu aðgerðasinnar fjölda tennisbolta inn á völlinn með skilaboðunum „Stöðvið leikinn“ og vísuðu þar til komandi leikja í Þjóðadeildinni. Írska sambandið leggur áherslu á að hugsanleg sniðganga leikjanna hefði getað haft slæmar afleiðingar fyrir írska fótboltann og írskar íþróttir. The Football Association of Ireland (FAI) has confirmed that UEFA has approved a request to host the 2026-27 UEFA Nations League fixture between Ireland and Israel on October 4th overseas, in a neutral venue and behind closed doors. pic.twitter.com/R2OIDwMeFA— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 12, 2026 Sambandið bendir á að töpuð stig í Þjóðadeildinni hefðu getað skert möguleika liðsins á að komast á EM 2028, sem Írland heldur ásamt Bretlandi. Írska knattspyrnusambandið greinir jafnframt frá því að það hafi verið í nánu sambandi við palestínska knattspyrnusambandið. Írarnir hafa áður hvatt Knattspyrnusamband Evrópu til að víkja ísraelska knattspyrnusambandinu úr evrópskum keppnum vegna hernaðaraðgerða Ísraels á Gaza. Ísrael mun einnig spila sinn „heimaleik“ gegn Írlandi á hlutlausum velli þann 27. september.
Þjóðadeild karla í fótbolta Ísrael Mest lesið ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Sjá meira