„Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 13. júní 2026 16:31 Óskar Smári Haraldsson er himinlifandi eftir sigur á Breiðablik Anton/Vísir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var eðlilega ánægður eftir frábæran 3-1 sigur liðsins gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í Bestu deild kvenna í dag. „
Já, þetta var glæsilegt. Í sannleika sagt,“ sagði Óskar eftir leik. „Stelpurnar voru bara geggjaðar. Eins og ég sagði við þær fyrir leikinn þá fannst mér þær vera búnar að setja undirbúninginn alla vikuna undir það að koma hingað og vinna. Þetta var ekkert flókið. Mér fannst þetta bara vel samstillt og í sannleika sagt voru stelpurnar glæsilegar í dag.“ Stjarnan komst í 3-0 í síðari hálfleik áður en Hrafnhildur Ása minnkaði muninn fyrir Breiðablik skömmu síðar. Óskar viðurkenndi að það hefði farið aðeins um sig á þeim tímapunkti. „Já, smá. Það fór smá um mig,“ sagði Óskar. „Breiðablik er jafngott lið og raun ber vitni og Ása kom með smá sjálfstraust inn í leikinn og skorar. Við sofnum alveg vel á verðinum varnarlega þar. Það komu fókusleysispunktar í leiknum hjá okkur sem voru ekki nægilega góðir og það voru eiginlega stærstu færin sem Blikarnir fengu í dag.“ Óskar var þó ánægður með hvernig Stjarnan brást við eftir markið. „Hægt og rólega náðum við okkur aftur, unnum okkur inn í í varnarleikinn okkar og fórum aðeins að vera betri í fótboltanum. Þessi hrollur fór mjög fljótt hjá mér þegar ég sá að stelpurnar létu þetta ekki á sig fá. Þær héldu bara áfram. Ég er mjög stoltur af liðinu mínu fyrir það.“ „Styrkleikamerki að það skiptir ekki máli hver spilar“ Stjarnan skoraði þrjú glæsileg mörk í leiknum. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir gerði tvö þeirra og Úlfa Dís bætti því þriðja við. Þá átti Bridgette í marki Stjörnunnar einnig mjög góðan leik. Óskar var þó ekki tilbúinn að einskorða hrósið við nokkra leikmenn. „Bridgette er mjög góð og Úlfa er mjög góð og Ingibjörg er mjög góð. Anna María, sem fer út af í hálfleik, er líka mjög góð. Rósa, sem kemur inn á í hálfleik og er 15 ára, hún er líka mjög góð,“ sagði Óskar. „Við erum bara með, ég hef sagt það áður, óeðlilega mikla breidd á góðan hátt. Hvaða leikmenn sem þú nefnir þá eru þær frábærar.“ Stjarnan var án nokkurra leikmanna í dag en lét það ekki á sig fá. „Við missum fyrirliðann okkar út af leiknum. Jakobína spilar ekki, Margrét er ekki í leiknum, Jana er ekki í leiknum, Sandra er ekki með okkur og Hulda ekki heldur. Það vantar sex leikmenn,“ sagði Óskar. „En þetta er það sem við þurfum að takast á við. Ég tek undir þegar Guðni, vinur minn, segir að FH sé með stóran og breiðan hóp. Ég held að við séum á sama stað. Við erum með 22 leikmenn sem geta byrjað og geta spilað.“ Óskar sagði sigurinn sýna styrk hópsins. „Það er styrkleikamerki að það skiptir ekki máli hver spilar. Við höldum bara í okkar. Ég er með mjög, mjög öflugt lið.“
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira