Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 23:00 Lukkudýr HM 2026 eru elgurinn Maple frá Kanada, jagúarinn Zayu frá Mexíkó og skallaörninn Clutch frá Bandaríkjunum. Getty/Noam Galai Lögreglan í Perú beitti nýstárlegri aðferð til að berjast gegn fíkniefnasölu á miðvikudag þegar hún gerði húsleit í höfuðborginni Líma dulbúin sem lukkudýr heimsmeistaramótsins í fótbolta 2026.
Í myndbandi sem birt var á opinberum TikTok-reikningi lögreglunnar mátti sjá lögreglumenn klædda sem skallaörninn Clutch og elginn Maple brjóta niður hlið með múrbrjót áður en þeir handtóku mann í hvítum hlýrabol. Myndbandið sýndi einnig lögreglumenn finna pakka með hvítu dufti og skotvopni og bar yfirskriftina: „HM-gírinn: Aðgerð lýkur með falli „Pichichi“.“ Police in Peru are going viral after conducting a drug raid while dressed as FIFA World Cup mascots.Video footage shows officers wearing mascot suits of Maple the Moose and Clutch the Bald Eagle while smashing through a metal gate with a battering ram.https://t.co/MP5gEvodYE— The Athletic (@TheAthletic) June 13, 2026 „Þökk sé leyniþjónustustarfi sveitarinnar gátum við komist að því að maðurinn sem við ætluðum að handtaka var harður fótboltaaðdáandi sem lifði og hrærðist í HM-hitanum,“ sagði Carlos Fredy Alcántara Obregón, yfirmaður Grænu sveitar lögreglunnar, við The Associated Press: „Við ákváðum að láta starfsfólk Grænu sveitarinnar dulbúast sem lukkudýr HM til að nálgast hann án þess að vekja grunsemdir og framkvæma handtökuna,“ sagði Obregón. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem perúska lögreglan klæðist athyglisverðum búningum við handtökur. Á Valentínusardaginn árið 2025 klæddi lögreglumaður sig upp sem flóðsvín með skjaldbökulaga bakpoka til að framkvæma handtöku í fíkniefnarannsókn í Líma. Aðrir lögreglumenn hafa einnig áður dulbúið sig sem Marvel-ofurhetjur. Perú komst ekki á heimsmeistaramótið í ár en liðið lenti í níunda sæti af tíu liðum í Suður-Ameríkuriðlinum. Síðast tók liðið þátt í úrslitakeppninni árið 2018. Undercover cops.Police officers dressed as mascots of the FIFA World Cup arrest a suspect during an undercover operation into drug trafficking in Lima, Peru📸 Hugo Curotto Olaechea / PERU NATIONAL POLICE pic.twitter.com/cDgHyiKCaV— AFP News Agency (@AFP) June 12, 2026
HM 2026 í fótbolta Perú Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira