Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 18:17 Yukinari Sugawara talar ekki niður væntingar japanska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið. Getty/Ezra Shaw Japanir spila sinn fyrsta leik á HM en þeir eru á listum margra sérfræðinga yfir þjóð sem getur náð langt á mótinu. Liðið hefur unnið stórar þjóðir á HM og vann bæði England og Brasilíu í aðdraganda heimsmeistaramótsins.
Frá árinu 2005 hefur Japan haft það langtímamarkmið að vinna heimsmeistaramót karla fyrir árið 2050. Það er samt ekki áætlaður tími fyrir hvenær þeir telja sig loksins ná því markmiði. Það er frekar lokafresturinn. Það er hungur í að ná því markmiði löngu fyrr. Jafnvel þegar þeir urðu fyrsta þjóðin, fyrir utan gestgjafaþjóðirnar þrjár, til að tryggja sér sæti á mótinu 2026 í mars síðastliðnum, héldu þeir því fram að það væri aðeins fyrsti hluti verksins sem væri lokið. „Við komum hingað til að vinna heimsmeistaramótið,“ sagði vængbakvörðurinn Yukinari Sugawara við ESPN eftir síðustu æfingu Japans fyrir leikinn við Holland í kvöld. Tilbúnir í það að keppa um að vinna mótið „Við komum ekki bara hingað til að skemmta okkur. Við verðum að vera tilbúnir í það að keppa um að vinna heimsmeistaramótið. Við verðum að berjast fyrir því. Við verðum að berjast fyrir landið okkar, fjölskylduna okkar, vini okkar og allt japanska fólkið. Við erum klárir í slaginn,“ sagði Sugawara. 🇯🇵 #SaintsFC & Japan’s Yukinari Sugawara: “We came here to win the World Cup. We didn't just come here for fun. We have to be ready for that. We have to fight for our country, our family, our friends, and all of the Japanese people. We're ready to go.” @ESPN pic.twitter.com/j7xdEv5lJL— SaintsExtra (@SaintsExtra) June 13, 2026 Á síðasta heimsmeistaramóti unnu Japanir bæði Þýskaland og Spán á meðan undirbúningur þeirra fyrir mótið í ár fól í sér fyrstu sigra þeirra gegn Brasilíu og Englandi í vináttulandsleikjum. Sugawara viðurkennir að Hollendingar verði önnur erfið prófraun en leggur áherslu á að ekkert verði látið ógert í undirbúningnum. „Þetta verður virkilega stór leikur og erfiður,“ bætti Sugarawa við, sem er nú á mála hjá Southampton en var á láni hjá Werder Bremen í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili. „Það eru aldrei auðveldir leikir á heimsmeistaramótinu. Og Holland er nokkuð gott lið. Við verðum að undirbúa allt – andlega, líkamlega – og greina allt líka, en við höfum gert þessa hluti. Nú erum við tilbúnir til að vinna leik og klárir í slaginn,“ sagði Sugawara. „Mér líður eins og ég sé í draumi“ Þar sem Hajime Moriyasu, þjálfari Japans, neyðist nú til að stokka upp í liðsuppstillingunni vegna meiðsla manna, er Sugawara líklegur til að koma inn og gegna lykilhlutverki. „Þetta er draumur. Mér líður eins og ég sé í draumi,“ sagði hinn 25 ára gamli leikmaður. „Að spila á heimsmeistaramóti hefur verið draumur síðan ég var krakki. En við komum hingað til að vinna. Okkar styrkur er að við stöndum alltaf saman [óháð því hvaða leikmenn eru tiltækir]. Við skiljum aldrei neinn einan eftir,“ sagði Sugawara. „Við spilum alltaf, æfum og leggjum hart að okkur saman. Við munum bara gera það sem við gerum alltaf. Þannig að já, við munum skrá okkur á spjöld sögunnar, ekki satt?“ sagði Sugawara.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira