Friðarviðræður sagðar í uppnámi Tómas Arnar Þorláksson og Eiður Þór Árnason skrifa 14. júní 2026 17:04 Trump Bandaríkjaforseti er sagður vera ósáttur við aðgerðir Netanjahú og ísraelskra stjórnvalda. Getty Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti telur samt sem áður að samningur við Íran verði undirritaður „á næstu tveimur til þremur klukkustundum.“ Þetta sagði hann í samtali við Fox News. Trump bætti við að hann hefði talað við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í síma eftir árásirnar á Beirút í dag. Trump virðist ósáttur með aðgerðir Ísraels og notaði blótsyrði þegar hann spurði Netanjahú hvað hann væri að gera, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. „Hann sagði forsætisráðherranum að gera ekki frekari árásir á Hezbollah, svo það hefði ekki áhrif á framgang þessa samnings,“ sagði Trey Yingst, fréttamaður Fox News, í beinni útsendingu frá höfuðborg Ísraels. Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Íran, varaði við því að nýjasta árás Ísraels á Líbanon sýndi að Bandaríkin stæðu ekki við skuldbindingar sínar og skorti annað hvort vilja eða getu til þess. Ghalibaf sagði það „tilgangslaust“ að „halda áfram á þessari braut“ eftir árás Ísraels. Trump hefur sagt að friðarsamkomulag verði undirritað í dag og vonast til þess að ganga frá því á afmælisdeginum sínum en hann varð í dag áttræður. Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social að árás Ísraela hefði ekki átt að eiga sér stað. Hann hvatti alla aðila á svæðinu til að halda ró sinni og skrifaði að „það gæti stefnt í langvarandi og fallegan frið. Við skulum ekki klúðra þessu!“ Hezbollah hafi átt fyrsta skotið Utanríkisráðuneyti Ísraels segir að Hezbollah í Líbanon, sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran, hafi gert tilefnislausa árás á Ísrael í morgun. Þá hefur Ísrael einnig sakað Hezbollah um að hafa gert tilefnislausa árás í mars að ósk Íran. Yfirvöld í Íran krefjast þess að vopnahlé feli einnig í sér endalok stríðsins í Líbanon. Ísraelar hafa hafnað þessum hugmyndum en stjórnvöldum þar virðist hafa verið ýtt til hliðar í friðarviðræðum Íran og Bandaríkjanna. Þá hafa ráðamenn í Ísrael kvartað yfir því að samningurinn sem unnið er að sé óheppilegur fyrir Ísrael. Ísraelskir embættismenn segja átökin gegn Hezbollah í Líbanon aðskilin frá þeim í Íran en markmið stjórnvalda í Teheran hefur verið að tengja þessi átök saman. BBC hefur eftir háttsettum írönskum ráðamanni að samningsdrög Íran og Bandaríkjanna kveði á um umsvifalausa opnun Hormússunds, líkt og Trump hefur gefið til kynna. Brothætt vopnahlé frá 7. apríl Í gær sögðu fulltrúar Pakistans, sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna, að samkomulagið yrði líklega undirritað innan sólarhrings. Brothætt vopnahlé hefur verið í gildi í Íran frá 7. apríl og ríkin þrátt fyrir það skipst á árásum. Á síðustu vikum hefur Trump ítrekað fullyrt að stjórnvöld væru nálægt samkomulagi. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði í gær að langt væri frá því að friður væri í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Þrír dagar eru síðan Trump hótaði að gera öflugar árásir á Íran og hernema Kharg-eyju. Þeim árásum var síðan aflýst sama dag. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Ísraels og Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. Íran hefur meira og minna stjórnað umferð um Hormússund frá því að stríðið hófst og nánast stöðvað olíu- og jarðgasflutninga frá Persaflóa. Bandaríkin hafa brugðist við með því að setja íranskar hafnir í herkví og þannig reynt að auka þrýstinginn á íranskan efnahag með því að koma í veg fyrir útflutning þeirra á olíu. Íran hefur sýnt varfærni í samningaviðræðunum og bent á að fyrri viðræður við Bandaríkin sem fóru fram á síðasta ári og í byrjun þessa árs hafi ekki komið í veg fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Ísrael Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Líbanon Tengdar fréttir Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 14. júní 2026 12:40 Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Íran og Bandaríkin hafa aldrei verið jafn nálægt samkomulagi um endalok stríðsins, að sögn fulltrúa Pakistans sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að samkomulag yrði undirritað á morgun en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 13. júní 2026 23:50 „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira
Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 14. júní 2026 12:40
Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Íran og Bandaríkin hafa aldrei verið jafn nálægt samkomulagi um endalok stríðsins, að sögn fulltrúa Pakistans sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að samkomulag yrði undirritað á morgun en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 13. júní 2026 23:50
„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38