Austlæg átt og víða líkur á vætu Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2026 07:15 Hiti verður á bilinu sex til nítján stig, hlýjast á Norðausturlandi, en svalast austast. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fremur hægri, skýjuðu og eru líkur á vætu. Norðaustan- og austanlands ætti að létta til og verður hlýjast á Norðausturlandi í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að það bæti í vind á morgun, síst þó á suðvesturhorninu. „Líkur á síðdegisskúrum suðvestanlands, en annars víða bjart veður og hlýtt vestan- og norðanlands. Suður í hafi er allvíðáttumikil og hægfara lægð á leið til okkar í vikunni og áhrifa hennar fer að gæta á morgun með vaxandi norðaustanátt, en þó verður víðast þurrt. Skilin frá henni koma inn á landið á miðvikudag, 17. júní, með rigningu og svölu veðri um austanvert landið, en úrkomulítið og milt vestanlands. Víða strekkings norðaustanátt en eins og áður sleppur suðvesturhornið nokkuð vel í þeirri vindátt og ætti þá að vera þokkalegasta þjóðhátíðarveður á þeim slóðum með hita á bilinu 12 til 17 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 i dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vaxandi norðaustanátt, 8-15 seinnipartinn og hvassast norðvestantil og syðst á landinu. Bjart með köflum, en stöku skúrir suðvestanlands. Hiti 7 til 17 stig, mildast norðan- og vestanlands. Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn) og fimmtudag: Norðaustan 8-15. Rigning um austanvert landið, en þurrt að mestu vestanlands. Hiti 6 til 15 stig, mildast suðvestanlands. Á föstudag: Norðan 5-13 og rigning með köflum, en stöku skúrir um landið sunnanvert. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast syðst. Á laugardag: Norðlæg átt og dálitlar skúrir, einkum síðdegis um landið sunnanvert. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast syðst. Á sunnudag (sumarsólstöður): Útlit fyrir vestlæga átt, skýjað með köflum og stöku skúrir sunnanlands, einkum síðdegis. Heldur hlýnandi.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira