Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2026 10:53 Líbanir á flótta undan árásum Ísraela hlaða sendiferðabíl með föggum sínum í Sídon. Ísraelar segjast ekki ætla að hörfa frá Líbanon þrátt fyrir samkomulag sem bandamenn þeirra hafa náð við Írani um vopnahlé. AP/Mohammed Zaatari Margt er enn á huldu um samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir náðu um vopnahlé og opnun Hormússunds í gær. Ísraelskir ráðherrar hafa þegar lýst sig óbundna af því sem samið var um.
Pakistanir, sem hafa haft milligöngu um viðræður á milli fulltrúa Bandaríkjastjórnar og írönsku klerkastjórnarinnar undanfarnar vikur, tilkynntu í gær að samkomulag hefði náðst. Skrifað yrði undir það í Sviss á föstudag. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra hans, héldu því í fyrstu fram að samkomulagið þýddi að Hormússund yrði strax opnað en þeir drógu síðar báðir í land. Íranir segja að sundið verði ekki opnað fyrr en þeir sjá hverjar efndir viðsemjenda þeirra verða. Hormússund hefur verið sérstakt bitbein í viðræðunum en Íranir lokuðu því í reynd með árásum og hótunum gegn skipum sem um það sigla eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu stríð gegn þeim í febrúar. Sundið er ein helsta flutningsleið olíu í heiminum og snarhækkaði olíuverð í kjölfarið. Olíuverð lækkaði strax þegar markaðir í Asíu voru opnaðir í nótt. Taka sér sextíu daga til að semja um það sem tók fleiri ár að ná saman um Samkomulagið er sagt fela í sér vopnahlé á milli aðila, þar á meðal í Líbanon þar sem Ísraelar hafa barist gegn Hezbollah-samtökunum, bandamönnum írönsku klerkastjórnarinnar. Íranskir fjölmiðlar fullyrði að Bandaríkjastjórn hafi fallist á að veita Írönum aðgang að frystum eignum að andvirði tólf milljarða dollara áður en frekari samningaviðræður halda áfram. Eftir að samkomulagið verður undirritað gefa Bandaríkjamenn og Íranir sér sextíu daga til þess að semja um afdrif kjarnorkuáætlunar Írans og birgðir landsins af auðguðu úrani. Til samanburðar tók það heimsveldin undir forystu fyrri stjórnar Baracks Obama fleiri ár að semja við Írani um það. Trump rifti þeim samningi á fyrra kjörtímabili sínu. J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali í gær að tryggingar fyrir því að Íranir gætu ekki eignast kjarnavopn væru innbyggðar í samkomulagið. Bandaríkjastjórn gæti fylgst með því að Íranir heiðruðu samkomulagið. Boðaði hann komu sína til Sviss til þess að undirrita samkomulagið á föstudag. Útilokaði hann ekki að Trump sjálfur ferðaðist þangað líka. Ísraelskir harðlínumenn ósáttir Örlög samkomulagsins eru ekki aðeins í höndum Bandaríkjamanna og Írana. Árásir Ísraela á Líbanon hafa verið ásteytingarsteinn í viðræðunum en Íranir hafa krafist þess að vopnahlé nái einnig þangað. Trump reiddist Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar Ísraelsher gerði frekari árásir í Líbanon um helgina vegna þess að þær tefldu samkomulaginu við Írani í tvísýnu. Harðlínumenn í stjórn Netanjahú hafa þegar lýst frati á samkomulaginu. Ísrael Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að ísraelski herinn ætli sér að halda kyrru fyrir á þeim landsvæðum í Líbanon sem hann hefur hernumið „ótímabundið“. Það sama ætti við um svæði á Gasaströndinni og í Sýrlandi. Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels, ræðir við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra. Harðlínumenn eins og Smotrich eru afar ósáttir við samkomulag Bandaríkjanna við Íran.Vísir/EPA Itamar Ben Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, fullyrti að hendur Ísraela yrðu ekki bundnar af samkomulaginu sem helsta bandalagsríki þeirra gerði við Írani. „Samkomulag Trumps bindur okkur ekki. Við eigum ekki aðild að þessu samkomulagi. Það tryggir ekki öryggi okkar,“ sagði Ben Gvir á samfélagsmiðli. Félagi hans, Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra, gekk enn lengra og sagði samkomulag Bandaríkjanna og Írans slæmt fyrir Ísrael og allan frjálsa heiminn. „Við munum þurfa að halda áfram baráttunni til þess að steypa [klerka]stjórninni af stóli og á skapandi hátt og tryggja að Íran komist aldrei yfir kjarnavopn,“ skrifaði Smotrich á samfélagsmiðli.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Líbanon Bensín og olía Jarðefnaeldsneyti Átök í Ísrael og Palestínu Donald Trump Kjarnorka Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira