Maður dagsins á HM: Henti póstinum í ruslið en svaraði níu mánuðum síðar Sindri Sverrisson skrifar 16. júní 2026 10:07 Roberto Lopes er mættur á sjálft heimsmeistaramótið og búinn að halda hreinu gegn Evrópumeisturum Spánar. Getty/Andrew J. Clark Roberto Lopes vann við skrifstofustörf hjá banka í Dublin og spilaði sem áhugamaður hjá írska liðinu Bohemians en er nú mættur á stærsta svið fótboltans, HM, og stóð vaktina með stakri prýði í vörn Grænhöfðaeyja sem hélt Spáni í skefjum í gær.
Grænhöfðeyingar slógu í gegn á HM í gær með markalausu jafntefli við Spán sem er í 2. sæti heimslistans. Fáir bjuggust við nokkru af Grænhöfðaeyjum á mótinu en Lopes, sem verður 34 ára á morgun, og félagar fögnuðu af innlifun eftir stigið sem þeir unnu sér inn í gær. Lopes hefur áður rætt um það hvernig það kom til að hann var valinn í landslið Grænhöfðaeyja, þrátt fyrir að vera fæddur og uppalinn á Írlandi. Pabbi hans er frá Grænhöfðaeyjum og þetta ákvað Rui Águas, þáverandi landsliðsþjálfari þjóðarinnar, að nýta sér og sendi Lopes póst í gegnum LinkedIn árið 2018. Lopes skilur hins vegar ekki portúgölsku og þegar hann sá póstinn fattaði hann ekki að þar var verið að bjóða honum að spila fyrir landslið Grænhöfðaeyja. Hann hélt einfaldlega að um ruslpóst væri að ræða eða eitthvað slíkt. #FIFAWorldCup Oh wow. This is one of the craziest stories of this World Cup. Defender Lopes, who made a CRAZY block at the end to deny Spain, tells the story of how he got the callup to play for Cabo Verde.Thanks to LinkedIn 😅(Via FIFPRO)pic.twitter.com/6fTsTE30aS— Vinayakk (@vinayakkm) June 15, 2026 Níu mánuðum síðar fékk hann hins vegar aftur póst, í þetta sinn á ensku, og skildi þá loks hvernig var í pottinn búið. Lopes var þá fljótur að svara, baðst afsökunar á að hafa hundsað Águas til að byrja með og hefur verið hluti af landsliðinu síðan þá. Þegar þetta gerðist var Lopes hættur að vinna í banka og orðinn atvinnumaður hjá Shamrock Rovers en þar hefur hann spilað frá árinu 2017 og mætti til að mynda Víkingi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir tveimur árum. Hann var sömuleiðis kominn inn í lið Shamrock árið 2017 þegar það sló Stjörnuna út í forkeppni Evrópudeildarinnar. Lopes, eða Pico eins og hann er kallaður, fékk háa einkunn fyrir frammistöðu sína gegn Spáni í gær og átti sinn þátt í því að Grænhöfðaeyjar eru nú þegar búnar að ná í sitt fyrsta stig. Næsti leikur liðsins er á sunnudagskvöld við Úrúgvæ og liðið mætir svo Sádi-Arabíu í lokaumferð riðlakeppninnar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira