Kennarar óttast framkvæmd símafrís Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 16. júní 2026 21:29 Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir skiptar skoðanir meðal kennara um áform borgaryfirvalda. Vísir/Vilhelm Grunnskólanemendur í Reykjavík mega hvorki nota farsíma né sambærileg snjalltæki á skólatíma næsta haust eftir að borgarstjórn samþykkti að taka upp símafrí í skólunum. Foreldrar fagna þessu en kennarar hafa áhyggjur af framkvæmdinni.
Borgarstjórn samþykkti þetta á fundi sínum í dag en skóla- og frístundasvið mun sjá um að innleiða símafríið. Það felur í sér að ekki má nota símana á skólatíma, það gildir einnig um frímínútur og hádegishlé, nema með sérstöku leyfi starfsfólks eða vegna skilgreindra undantekninga. Hópur foreldra hefur um nokkurt skeið barist fyrir símafríi í skólum. „Þetta er mikið fagnaðarefni og við svona sem erum foreldrar sem höfum beitt okkur fyrir því að koma á símafríi í skólunum hjá börnunum okkar þá vorum við í leiðinni að höfða til borgarinnar um að það væri miklu betra að það væru samræmd viðmið,“ segir Fanney Karlsdóttir, ein þessara foreldra. Fanney Karlsdóttir er ein þeirra sem barist hefur fyrir símafríi í grunnskólum. Vísir/Sigurjón Símafrí var tekið upp í Seljaskóla síðasta haust þar sem börn Fanneyjar eru. „Það sem mín börn hafa lýst er að þetta sé svo góð breyting að það sé bara miklu skemmtilegra í skólanum. Meira talað saman og spilað í frímínútum og síðan er bara miklu meiri námsfriður.“ Vilja ekki vera í eltingarleik Skólarnir þurfa að hafa viðeigandi aðstöðu og skýrt verklag til að geyma síma á öruggan hátt frá upphafi til loka skóladags. Skiptar skoðanir eru meðal kennara um þessa ákvörðun. Þeir telja önnur verkefni brýnni og hafa nokkrar áhyggjur af framkvæmdinni. „Fólk óttast framkvæmdina. Það er þannig að reglur sem eru settar kalla á það að það þurfi að vera góð umgjörð. Það mun þýða að það þarf að finna í hverjum skóla fyrir sig staðsetningu þar sem þarf að geyma viðkomandi síma. Það eitt og sér mun hafa fjárútlát og skipulag í för með sér og það hefur verið svona lenskan að við viljum ekki vera í eltingarleik eða í neikvæðum samskiptum við börn. Foreldrar myndu hjálpa mjög, ef þetta er reglan, að símarnir verði bara heima og árekstrarnir verði ekki inni í skólunum,“ segir Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands.
Börn og uppeldi Reykjavík Samfélagsmiðlar Skóla- og menntamál Grunnskólar Símanotkun barna Borgarstjórn Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira