Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Andri Broddason skrifar 18. júní 2026 07:32 Leikmenn Gana gátu skiljanlega fagnað eftir að hafa tryggt sigur leiksins í uppbótartíma Robert Cianflone/Getty Images Tveir leikir fóru fram á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt. Þar mættust Gana og Panama annars vegar og Kólimbía og Úsbekistan hins vegar.
Í fyrri leik næturinnar fór fram leikur Gana og Panama. Gana er ekki með miðjumanninn sinn Thomas Partey í hóp vegna þess að hann hefur ekki fengið vegebréfsáritun til þess að komast til Kanada þar sem leikurinn var spilaður. Hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot á Englandi og er það mál enn þá í rannsókn. Leikurinn var frekar jafn en Panama var óvænt meira með boltann í leiknum. Gana voru hins vegar ekki slakir og náðu að skapa sér nokkur góð færi. Hvorugt liðið náði þó að skora í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik byrjaði Gana að skapa sér meira af færum en liðið náði ekki að skora fyrr en á lokaandartökum leiksins. Þá spretti Brandon Thomas-Asante upp vinstri kantinn og gaf þéttan bolta fyrir markið þar sem Caleb Yirenkyi gat lagt hann í markið af stuttu færi. Þetta reyndist eina mark leiksins en Panama kom skemmtilega á óvart í leiknum og spilaði vel þrátt fyrir tap. Úsbekistan og Kólumbía mættust í Mexíkóborg í nótt og var það kannski jafnari leikur en fólk bjóst við. Fyrir leik hefðu flestir haldið að Kólumbía myndi valta yfir Úsbeka en það var ekki jafn auðvelt og það sýndist. Kólumbía náði að komast yfir á 40. mínútu þegar Daniel Munoz skoraði eftir frábæra sendingu inn í teiginn. Það reyndist vera eina mark fyrri hálfleiks. Úsbekistan gafst þó ekki upp og jafnaði metin á 60. mínútu með góðri sókn. Leikurinn var þó ekki lengi jafn því fimm mínútum seinna náði Luis Diaz að koma Kólumbíu aftur yfir. Úsbekar náðu ekki að ógna marki Kólumbíu jafn vel eftir það og innsiglaði Jaminton Campaz sigur Kólumbíu með marki í uppbótartíma. Leikurinn endaði 3-1.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira