Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 09:18 Hollensk stúlka fær sprautu með bóluefni gegn HPV-veiru. Byrjað var að bjóða stúlkum bóluefnið árið 2008 og síðan þá hefur dauðföllum ungra kvenna af völdum leghálskrabbameins hríðfækkað í Bretlandi. Vísir/EPA Engar ungar konur létust af völdum leghálskrabbameins í Bretlandi á fimm ára tímabili í fyrsta skipti í sögunni. Talið er að bólusetningar gegn HPV-veiru sem hófust árið 2008 hafi bjargað um tvö hundruð mannslífum.
Rannsókn sem birt var í læknaritinu Lancet sýnir að dauðsföll af völdum leghálskrabbameins séu orðin mun fátíðari eftir að stúlkum á skólaaldri var boðið bóluefni gegn HPV-veiru fyrir átján árum. Veiran er talin ábyrg fyrir 99 prósentum tilfella leghálskrabbameins. Engin kona á aldrinum tuttugu til 24 ára lést úr leghákskrabbameini í Bretlandi frá 2020 til 2024 og er það sagt í fyrsta skipti sem meinið veldur engum dauðsföllum á fimm ára tímabili, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Áður en bólusetningar hófust létust um tuttugu konur fyrir þrítugt á hverju ári. Svo gott sem engar líkur eru nú taldar á að stúlkur sem eru bólusettar tólf eða þrettán ára gamlar láti af völdum leghálskrabbameins fyrir þrítugt. „Það er ótrúlegt að hugsa til þess að ein sprauta geti nánast útrýmt tiltekinni tegund krabbameins,“ hefur BBC eftir Peter Sasiene, aðalhöfundi greinarinnar frá Háskóla Maríu drottningar í London. Leghálskrabbamein er eftir sem áður eitt algengasta krabbameinið á meðal breskra kvenna. Um 3.300 þeirra greinast með meinið á hverju ári. Byrjað var að bólusetja gegn HPV-veiru á Íslandi árið 2011. Aðeins stúlkur fengu bóluefnið framan af en fyrir tveimur árum var byrjað að bjóða það börnum á tilteknum aldri óháð kyni.
Vísindi Bólusetningar Lyf Bretland Krabbamein Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira