Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 10:14 Þykkan svartan reyk leggur frá olíuhreinsistöð Gazprom við Moskvu eftir að hún varð fyrir úkraínskum dróna. Þetta var önnur drónaárásin á stöðina á þremur dögum. Vísir/Getty Úkraínskir drónar hæfðu olíuhreinsistöð í Moskvu í annað skiptið á einni viku í einni umfangsmestu drónaárás þeirra á Rússland frá upphafi stríðsins. Farþegaflug til og frá borginni lamaðist um tíma vegna árásanna.
Mikill eldur sást geisa í Olíuhreinsistöð Moskvu, um fimmtán kílómetrum frá Kreml, á myndböndum og myndum sem rússneskir fjölmiðlar birtu í morgun. Þykkan svartan reykjarmökk lagði yfir borgina. AP-fréttastofan segir að hreinsistöðin sé ein sú stærsta í Rússlandi og að hún meðhöndli um þriðjung eldsneytis fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún varð einnig fyrir úkraínskri drónaárás á þriðjudag. Flugferðum til og frá fjórum flugvöllum við Moskvu var frestað vegna árásanna. Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu, lýsti árásunum sem „langdrægum refsiaðgerðum“ gegn Rússlandi í færslu á samfélagsmiðlum í morgun. Hann segir Úkraínumenn einnig hafa hæft skotmörk í Rostov og á hernumdum svæðum í Úkraínu. Árásin hófst nokkrum klukkustundum eftir að Selenskí greindi frá mikilvægu samtali við Donald Trump Bandaríkjaforseta og Emmanuel Macron Frakklandsforseta sem gæti haft „verulegar breytingar í för með sér“. Áður hafði Selenskí sagt að hann hefði tryggt Úkraínu áframhaldandi stuðning á G7-ráðstefnunni í Frakklandi, þar á meðal frá Bandaríkjastjórn. Brak lenti á íbúðarhúsnæði Auk olíuhreinsistöðvarinnar varð íbúðarblokk í bænum Zhukovskí í Moskvuhéraði fyrir úkraínskum dróna og var hún rýmd. Brak úr drónum sem rússneskar loftvarnarbyssur skutu niður lenti einnig á íbúðarhúsum, iðnaðarhúsnæði og fleiru. Andrei Vorobjov, héraðsstjóri í Moskvuhéraði, segir að kona hafi særst af þessum sökum. Moscow air defense starting it's own fires by shooting down Ukrainian drones. The building hit by the downed drone in the first video is visibly on fire in the second video, as are numerous structures in the area.[image or embed]— Eliot Higgins (@eliothiggins.bsky.social) June 18, 2026 at 8:41 AM Rússneska varnarmálaráðuneytið segist hafa skotið niður 555 úkraínskra dróna víðsvegar yfir Rússlandi, þar á meðal um tvö hundruð þegar þeir nálguðust Moskvu. Úkraínumenn hafa ítrekað beint spjótum sínum að olíuinnviðum í Rússlandi til þess að reyna að draga úr getur Rússa til þess að há stríð sitt í Úkraínu og láta Rússa finna fyrir afleiðingum þess.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Bensín og olía Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira