Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 18. júní 2026 11:00 Munum eftir hlutverki fullorðinna. Börn og ungmenni læra öðru fremur af fyrirmyndum frekar en boðum og bönnum. Við sjáum fullorðna fólkið oft með síma í hendi við matarborðið, á fundum, í íþróttahúsum, á fjölskyldusamkomum og jafnvel í samskiptum við börn sín. Það vekur því eðlilega spurningar um hvort við séum að gera kröfur til barna sem við erum ekki tilbúin að gera til okkar sjálfra. Fullorðnir fyrirmyndir? Ef markmiðið er að byggja upp heilbrigðari stafræna menningu verður breytingin að ná til alls samfélagsins. Börn fylgja síður því sem fullorðnir segja en því sem þeir gera. Þess vegna þarf umræðan ekki aðeins snúast um símanotkun nemenda heldur einnig um símanotkun foreldra, kennara, stjórnenda og samfélagsins í heild. Árangur næst ekki með bönnum einum saman heldur með sameiginlegri vitundarvakningu þar sem fullorðnir taka ábyrgð á eigin hegðun og verða þær fyrirmyndir sem þeir vilja að börnin fylgi. Aðeins á skólatíma Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum fela í sér skýra stefnu um að takmarka aðgang nemenda að eigin símum á skólatíma með það að markmiði að stuðla að námsfriði, aukinni vellíðan, betri félagslegum samskiptum og sterkari skólabrag. Markmiðin eru að mörgu leyti bæði skiljanleg og jákvæð en um leið vakna mikilvægar spurningar um framkvæmd, ábyrgð og raunveruleg áhrif slíkra aðgerða í nútímasamfélagi. Að umgangast tækni Það er óumdeilt að símar og samfélagsmiðlar hafa haft gríðarleg áhrif á líf barna og ungmenna eins og okkur öll. Samskipti fara í auknum mæli fram í gegnum skjái, upplýsingaflæði er stöðugt og mörkin milli skóla, heimilis og félagslífs eru orðin óskýrari en áður. Samhliða þessari þróun hafa komið fram áhyggjur af einbeitingu, svefni, kvíða, félagslegum samanburði og neteinelti. Á sama tíma hafa tækin skapað ný tækifæri til samskipta, þátttöku, upplýsingaleitar og tengslamyndunar. Umræðan um síma í skólum snýst því ekki um hvort tæknin sé góð eða slæm heldur hvernig samfélagið vilji að börn læri að umgangast hana. Símanotkun utan skólatíma Drögin gera ráð fyrir að notkun einkasíma og annarra snjalltækja verði óheimil á skólatíma og að tækin verði geymd á stöðum sem nemendur hafa ekki aðgang að. Ein stærsta spurningin sem vaknar er hver beri ábyrgð á árangrinum. Skólinn sinnir aðeins hluta af degi barnsins og hefur áhrif á takmarkaðan tíma af heildarlífi þess. Mestur hluti símanotkunar fer fram utan skólatíma, á kvöldin, um helgar og í frítíma. Ef markmiðið er að bæta svefn, draga úr skjátíma eða minnka neikvæð áhrif samfélagsmiðla verður ekki horft fram hjá ábyrgð heimilanna. Ef sama barn hefur engan aðgang að síma í skólanum en eyðir síðan mörgum klukkustundum á samfélagsmiðlum á kvöldin er óvíst hversu mikil áhrif reglugerðin ein og sér mun hafa á heildarvelferð barna og ungmenna. Eðlilegur agi eða óþarfa íhlutun Einnig vakna spurningar um eftirlit og viðurlög. Reglugerðin kveður á um að skólastjórar beri ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd en vísar að öðru leyti til annarra reglna um viðbrögð við brotum. Það skapar ákveðna óvissu um hvernig brugðist verður við þegar nemendur fara ekki eftir reglunum. Hvað gerist ef nemandi neitar að afhenda síma? Hvernig verður brugðist við endurteknum brotum? Hvar liggja mörkin milli eðlilegs aga og óþarfa íhlutunar? Til að tryggja jafnræði og traust þarf að vera skýrt hvernig þessum málum verður háttað. Að kenna næstu kynslóð Reglugerðin er skref í ákveðna átt og geti orðið mikilvægt verkfæri til að stuðla að betra skólaumhverfi. Hins vegar er hætta á að væntingar til hennar verði meiri en raunhæft er. Vandinn sem verið er að takast á við er ekki eingöngu skólamál heldur samfélagsmál. Hvernig ætlum við sem samfélag að kenna næstu kynslóð að lifa með tækninni á heilbrigðan og ábyrgan hátt? Höfundur er deildarstjóri í grunnskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Símanotkun barna Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar