Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar 18. júní 2026 13:31 Umræða um framtíð Íslands á alþjóðavettvangi hefur um langt skeið einkennst af því hvernig við staðsetjum okkur gagnvart stærri valdablokkum. Hvort sem rætt er um Evrópusambandið, Atlantshafsbandalagið eða samskipti við Bandaríkin snýst umræðan gjarnan um tengsl Íslands við stærri og öflugri heildir. Minni athygli hefur hins vegar verið beint að þeirri spurningu hvort Norðurlöndin sjálf geti orðið eitt áhrifamesta samstarfssvæði heims á sviði viðskipta, sjálfbærni, loftslagsmála, nýsköpunar og öryggis á komandi áratugum. Þetta er ekki aðeins fræðileg umræða. Loftslagsbreytingar, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni, aukin samkeppni um náttúruauðlindir, tæknibreytingar og breytt öryggisumhverfi kalla á nýjar leiðir til samstarfs. Á sama tíma standa Norðurlöndin í einstakri stöðu til að svara þessum áskorunum. Samanlagt búa rúmlega 28 milljónir manna á Norðurlöndum og hagkerfi svæðisins eru meðal þeirra samkeppnishæfustu í heimi. Traust til stofnana er hátt, menntunarstig mikið og samfélögin byggja á gildum sem fela í sér virðingu fyrir lýðræði, vísindum, mannréttindum og sjálfbærri þróun. Þessi sameiginlegi grunnur er ekki sjálfgefinn í alþjóðasamfélaginu. Í heimi þar sem pólitísk skautun, vantraust og þjóðernispopúlismi hafa aukist á undanförnum árum standa Norðurlöndin enn fyrir þeirri hugmynd að samfélagsleg velmegun, efnahagsleg samkeppnishæfni og vernd umhverfisins geti farið saman. Það eitt og sér veitir svæðinu sérstakt vægi. Þegar horft er til loftslagsmála kemur þessi sérstaða skýrt í ljós. Norðurlöndin hafa áratugum saman verið meðal framsæknustu ríkja heims í þróun lausna sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við orkuskipti. Danmörk hefur verið leiðandi í uppbyggingu vindorku. Noregur hefur þróað umfangsmikla þekkingu á kolefnisföngun og -geymslu. Svíþjóð hefur markað sér sérstöðu í þróun kolefnissnauðs iðnaðar og framleiðslu á grænu stáli. Finnland hefur verið í fararbroddi á sviði hringrásarhagkerfis og sjálfbærrar auðlindanýtingar. Ísland býr yfir einstökum möguleikum á sviði jarðhita, endurnýjanlegrar orku og nýrrar tækni til kolefnisbindingar. Þetta eru bara nokkur svið þar sem norðurlöndin eru í fremstu röð. Þau eru mun fleiri. Saman mynda þessi styrkleikar heild sem fá önnur svæði heims geta jafnast á við. Ef Norðurlöndin samræma stefnu sína enn frekar gætu þau orðið eins konar tilraunastofa fyrir sjálfbært samfélag framtíðarinnar þar sem nýjar lausnir eru þróaðar, prófaðar og innleiddar áður en þær breiðast út á alþjóðavettvangi. Loftslagsmálin eru þó aðeins hluti af stærri mynd. Á næstu árum mun vernd líffræðilegrar fjölbreytni verða ekki síður mikilvæg en kolefnishlutleysi. Norðurlöndin bera sameiginlega ábyrgð á víðfeðmum skógum, hafsvæðum og vistkerfum sem hafa alþjóðlegt gildi. Skógabelti Finnlands og Svíþjóðar gegna lykilhlutverki í kolefnisbindingu og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Hafsvæðin í Norður-Atlantshafi eru meðal mikilvægustu fiskimiða heims. Norðurheimskautssvæðið er eitt viðkvæmasta svæði jarðar gagnvart loftslagsbreytingum. Ísland hefur þar sérstaka stöðu sem brú milli Evrópu og norðurslóða. Þessi sameiginlegu náttúruverðmæti kalla á sameiginlega sýn. Þau kalla einnig á sameiginleg verkfæri. Þar kemur staðlastarf inn í myndina. Staðlar eru sjaldan áberandi í opinberri umræðu en þeir eru engu að síður meðal mikilvægustu innviða nútímasamfélaga. Þeir skapa sameiginlegt tungumál milli ríkja, atvinnugreina og markaða. Þeir gera fyrirtækjum kleift að starfa yfir landamæri, auðvelda nýsköpun og skapa traust í viðskiptum og stjórnsýslu. Í auknum mæli eru staðlar einnig lykilverkfæri í loftslags- og sjálfbærnimálum. Þegar fyrirtæki mæla kolefnisspor sitt, þegar sveitarfélög vinna að loftslagsmarkmiðum eða þegar fjárfestar meta sjálfbærni verkefna eru staðlar oft grundvöllurinn sem tryggir að upplýsingar séu áreiðanlegar og samanburðarhæfar. Þess vegna er athyglisvert að staðlasamtök Norðurlandanna hafa nú ákveðið að blása nýju lífi í norrænt staðlasamstarf. INSTA-samstarfið á sér langa sögu, en líkt og mörg eldri samstarfsform hefur það að nokkru leyti legið í lægð undanfarinn áratug eða svo. Það breytir þó ekki því að hugmyndin að baki INSTA er jafn mikilvæg og áður, jafnvel mikilvægari: að Norðurlöndin geti sameinað þekkingu sína, mótað sameiginlegar lausnir og haft meiri áhrif á þróun staðla en hvert land eitt og sér. Nú þegar græn og stafræn umbreyting samfélagsins er orðin eitt stærsta verkefni samtímans skapast nýtt tilefni til að endurvekja þetta samstarf af krafti. Sameiginleg norræn nálgun í staðlamálum gæti styrkt samheldni Norðurlandanna, aukið slagkraft þeirra í evrópsku og alþjóðlegu staðlastarfi og tryggt að norræn gildi eins og gagnsæi, traust, sjálfbærni, öryggi og samfélagsleg ábyrgð, endurspeglist betur í þeim viðmiðum sem móta framtíðarmarkaði. Þetta skiptir máli vegna þess að framtíðarsamkeppni þjóða mun ekki eingöngu ráðast af því hver framleiðir mest eða hver hefur stærsta markaðinn. Hún mun einnig ráðast af því hver setur viðmiðin. Sá sem mótar staðla framtíðarinnar hefur oft meiri áhrif en sá sem kemur síðastur að borðinu þegar reglurnar hafa þegar verið ákveðnar. Norðurlöndin hafa bæði þekkingu og trúverðugleika til að hafa áhrif á þá þróun, sérstaklega á sviðum eins og loftslagsmálum, hringrásarhagkerfi, sjálfbærri nýtingu auðlinda, gervigreind og stafrænu trausti. Í þessu samhengi er einnig eðlilegt að velta fyrir sér mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Slík umræða þarf ekki að vera einfölduð í afstöðu með eða á móti aðild til að við getum rætt möguleg áhrif hennar á norrænt samstarf. Ef Ísland yrði hluti af Evrópusambandinu ásamt Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi myndi það skapa nýjar forsendur fyrir samhæfða norrænna rödd innan sambandsins. Noregur stæði áfram utan ESB en væri, líkt og Ísland í dag, nátengdur innri markaðnum í gegnum EES. Þannig gæti norræna víddin jafnvel orðið mikilvægari brú milli ESB, EES og norðurslóða. Jákvæðu möguleikarnir liggja einkum í því að Ísland gæti átt enn nánara samráð með öðrum Norðurlöndum um mál sem þegar skipta okkur miklu: loftslagsstefnu, orkumál, sjávarútveg, málefni hafsins, hringrásarhagkerfi, stafræna innviði, neytendavernd, staðla og norðurslóðir. Í stað þess að líta á Evrópusamstarf sem eitthvað sem dregur úr norrænni samvinnu má allt eins líta á það sem vettvang þar sem norræn samvinna gæti fengið aukið vægi. Sterk norræn samstaða innan evrópskra stofnana gæti aukið áhrif smærri ríkja og gert þeim kleift að móta reglur og áherslur fyrr í ferlinu. Það er ekki þar með sagt að slíkt leysi öll álitaefni eða að norræn ríki hafi alltaf sömu hagsmuni. Þau eru ólík að stærð, framleiðslu og pólitískri stöðu. En þau deila nægilega mörgum grunngildum til að geta myndað öflugan kjarna í málum þar sem framtíðin er undir: loftslagsmálum, umhverfisvernd, orkuöryggi, nýsköpun og sjálfbærri auðlindanýtingu. Þar gæti Ísland, hvort sem það stendur innan eða utan ESB, haft verulegan ávinning af því að hugsa meira norrænt og minna einangrað. Hér er þó mikilvægt að forðast þá hugsun að Norðurlöndin þurfi að velja á milli eigin samstarfs og annarra bandalaga. Styrkur norræns samstarfs felst ekki í því að skapa valkost við Evrópusambandið eða Atlantshafsbandalagið heldur í því að gera Norðurlöndunum kleift að hafa meiri áhrif innan þessara samstarfskerfa. Norðurlöndin eiga áfram að horfa til Brussel og Washington, en þau ættu að gera það í auknum mæli saman, í sterkri og samheldinni stöðu, sem hópur ríkja sem deilir sameiginlegum gildum og sameiginlegri sýn á framtíðina. Áhrif Norðurlandanna hafa lengi verið meiri en íbúafjöldi þeirra gefur til kynna. Á 21. öldinni gæti það vægi aukist enn frekar ef löndin ná að sameina krafta sína á sviði loftslagsmála, verndar líffræðilegrar fjölbreytni, staðlasamstarfs, nýsköpunar, orkuöryggis og sjálfbærrar auðlindanýtingar. Í heimi sem leitar sífellt meira að lausnum fremur en slagorðum gæti norræna leiðin reynst ein áhrifamesta fyrirmynd framtíðarinnar. Spurningin er því ekki aðeins hvort Norðurlöndin geti haft aukin áhrif á þróun heimsins. Forsendurnar eru þegar fyrir hendi. Spurningin er hvort við höfum metnað til að nýta þær, endurvekja þau samstarfsform sem hafa veikst, styrkja þau sem þegar virka og byggja nýja norræna samheldni á þeim sviðum þar sem framtíðin ræðst. Höfundur er umhverfis- og auðlindafræðingur og verkefnastjóri hjá Íslenskum stöðlum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Haukur Logi Jóhannsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar