„Það verða engir konungar“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júní 2026 00:18 Undirbúningur hefur staðið yfir frá því að Obama lét af embætti í byrjun árs 2017. Getty Images Mikill stjörnufans var á opnunarhátíð safns tileinkað forsetatíð Baracks Obama í Chicago í dag. Allir núlifandi fyrrum forsetar Bandaríkjanna sóttu viðburðinn og stjörnur á borð við Christinu Aguilera, Stevie Wonder, John Legend og Jennifer Hudson komu fram. Núverandi forseti, Donald Trump, var ekki á boðslistanum.
Hefð er fyrir því í Bandaríkjunum að komið sé á fót einhvers konar safni tileinkuðu fyrrum forsetum. Oft eru þau kölluð bókasöfn en hér er líklega réttara að tala um miðstöð tileinkaða Obama-hjónunum og þeirra störfum. Fyrrum forsetafrúr, Jill Biden, Michelle Obama, Laura Bush og Hillary Clinton.Getty Miðstöðin kostaði 850 milljónir dollara og nær yfir stórt svæði í suðurhluta Chicago-borgar. Miðstöðin inniheldur safn, almenningsgarð, körfuboltavöll og almenningsbókasafn, svo eitthvað sé nefnt. Miðstöðin á að færa fólk saman og hvetja til lýðræðislegrar þátttöku. Obama flutti ræðu í tilefni dagsins þar sem hann hafnaði svartagallsrausi og kallaði eftir samfélagi sem byggði á réttlæti og trausti milli borgara. Þá vitnaði hann í sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna um að allir menn fæddust jafnir og sagði að „það yrðu engir konungar“ í Bandaríkjunum. Forsetinn fyrrverandi viðurkenndi í ræðu sinni að honum hefði að sjálfsögðu ekki tekist að klára öll sín verkefni meðan hann var í embætti en benti á að slíkt væri einkenni þess fjölbreytta lýðræðissamfélags sem Bandaríkin væru. Við ákvarðanatöku þyrfti að taka tillit til hundraða milljóna skoðana. „Lýðræðislegt ferli er erfitt. Það getur verið hægt og óskilvirkt. Ég vona þó ofar öllu öðru að þessi miðstöð verði áminning um hversu dýrmætt lýðræðið er.“ Í safni miðstöðvarinnar er síðan hluti sem tileinkaður er því sem ekki náðist fram, þá sérstaklega aðgerðum gegn fjöldaskotárásum. Oprah Winfrey kann að þefa uppi gott partý.Getty Images Obama minntist aldrei beinum orðum á Donald Trump í ræðu sinni en ýmislegt í ræðunni mátti þó túlka þannig að það beindist að núverandi forseta. Til að mynda talaði hann um trú sína á friðsamleg valdaskipti og fór lofsorðum um Mitt Romney og John McCain heitinn, nafntogaða repúblikana sem gerðust háværir gagnrýnendur Trumps. Þá sáust tár á hvarmi Baracks þegar Michelle eiginkona hans lofaði óendanlega seiglu hans og jákvæðni í ræðu sinni. Michelle er frá suðurhluta Chicago og þau hjónin bjuggu á nálægu svæði þegar Barack var fyrst kjörinn þingmaður. Vinsælasti forsetinn CNN birti í dag könnun sem leiðir í ljós að Obama er vinsælastur meðal núlifandi forseta en 57% landsmanna líta forsetatíð hans jákvæðum augum. Aðeins 30% segja það sama um Joe Biden og sem stendur eru aðeins 34% ánægð með frammistöðu Donalds Trump í embætti. Þegar spurt var opinnar spurningar: „Hvaða forseta lítur þú mest upp til?“ nefndu 30% Obama og 19% Trump. Á eftir þeim fylgdu Abraham Lincoln með 9% og Ronald Reagan með 6%. Miðstöðin verður opnuð fyrir almenningi á morgun, 19. júní. Dagurinn nefnist Juneteenth í Bandaríkjunum og er tileinkaður sögu og réttindabaráttu svartra.
Barack Obama Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira