Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júní 2026 14:47 Hólmsteinn fór um borð í Hval 9 þegar skipið lá við bakka í Reykjavíkurhöfn á öðrum tímanum í gær. Vísir/Bjarni Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn.
Óvíst hvort af hljótist kærumál Fréttastofa ræddi fyrr í dag við lögmann Hólmsteins, Katrínu Oddsdóttur. Hún segir svar Hvals að sigla af stað vera „gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ og segir ekki vera ljóst á þessum tímapunkti hvort atburðarásin muni leiða til ákæra. Þá gagnrýnir hún einnig hina miklu heift sem beinst hafi að Hólmsteini í kommentakerfum landsins. „Hvað ætlaði Hvalur hf. að gera ef þessi maður myndi detta niður á miðri leið einhvers staðar milli Reykjavíkur og Hvalfjarðar? Hvernig ætluðu þau að hjálpa honum ef hann hefði byrjað að klifra þarna í mastrið eitthvað af stað án þess að vera öruggur?“, spyr Katrín. Áhöfn bað Hólmstein um að gefja upp persónuupplýsingar, líkt og nafn og kennitölu. Útlit er fyrir að upplýsingarnar hafi verið nýttar í að skrá Hólmstein á farþegalista skipsins, án hans samþykkis, sem gerði skipinu kleift að halda úr höfn. Vísir/Bjarni Hvalur 8, annað hvalveiðiskip Hvals ehf., hélt út til æfinga og mættust skipin út á miðjum firði. Vísir/Bjarni Hólmsteini kólnaði mjög þegar út á sjó var komið.Vísir/Bjarni Hvalavinir, sem mótmælt hafa fyrirhuguðum hvalveiðum, segja Hólmstein ekki á þeirra vegum. Vísir/Bjarni Skipið lagði að bryggju laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi eftir um þrjá tíma á siglingu.Vísir/Bjarni Þegar í höfn var komið beið lögregla með körfubíl.Vísir/Bjarni Hér má sjá myndband af atburðarásinni sem við tók þegar skipið lagðist að bryggju. Bjarni Einarsson tökumaður Sýnar var á staðnum. Myndlýsing heldur áfram: Hópur fólks hafði safnast saman á bryggjunni, þar á meðal lögregluþjónar. Til vinstri á myndinni má sjá körfubílinn.Vísir/Bjarni Lögreglumaðurinn í körfunni ræddi Hólmstein í um klukkustund áður en hann fékkst til að yfirgefa skipið.Vísir/Bjarni Hólmsteinn samþykkti að yfirgefa skipið, var færður í öryggisbúnað og síðan komið yfir í körfuna.Vísir/Bjarni Vísir sýndi frá atburðarásinni í beinni útsendingu. Þegar mest var fylgdust um 800 manns með henni. Hólmsteinn sígur hér niður í átt til jarðar.Vísir/Bjarni Þegar niður á jörðu faðmaði Hólmsteinn, hér fyrir miðri myndi í gráum jakka, að sér lögreglumanninn sem sannfærði hann um að yfirgefa skipið. Lögregla skutlaði honum í kjölfarið út á Kjalarnes þaðan sem hann fékk far áleiðis til Reykjavíkur með Hvalavinum.Vísir/Bjarni Hér má sjá myndband af því þegar Hólmsteinn skreið yfir í körfuna:
Hvalveiðar Sjávarútvegur Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. 18. júní 2026 21:06 Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. 18. júní 2026 20:51 Sigldu af stað með mótmælandann um borð Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 18. júní 2026 16:38 „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu masturs á hvalveiðiskipi við Reykjavíkurhöfn til að mótmæla hvalveiðum. Hann veit ekki hversu lengi hann getur verið uppi. Hann er með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum. 18. júní 2026 14:36 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Sjá meira
Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Hólmsteinn Harðarson hefur yfirgefið hvalveiðiskipið Hval 9. Þegar á fast land var komið var hann færður á brott í lögreglubíl. 18. júní 2026 21:06
Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. 18. júní 2026 20:51
Sigldu af stað með mótmælandann um borð Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 18. júní 2026 16:38
„Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu masturs á hvalveiðiskipi við Reykjavíkurhöfn til að mótmæla hvalveiðum. Hann veit ekki hversu lengi hann getur verið uppi. Hann er með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum. 18. júní 2026 14:36