„Alfreð er æðsti klerkur þar“ Sindri Sverrisson skrifar 24. júní 2026 11:01 Alfreð Finnbogason og Freyr Alexandersson þekkjast vel og vinna nú saman hjá Rosenborg. Samsett/Getty Freyr Alexandersson og Alfreð Finnbogason tala „allt of mikið“ saman nú þegar þeir hafa sameinað krafta sína við að reisa norska stórveldið Rosenborg við eftir mikla lægð síðustu misseri.
Freyr var ráðinn þjálfari Rosenborgar á dögunum og Alfreð hefur verið yfirmaður fótboltamála hjá félaginu síðan í janúar. Þeir hafa áður unnið saman, þegar Alfreð var leikmaður, og Freyr nýtur þess að endurnýja kynnin: „Það er bara ótrúlega gaman. Alfreð er náttúrulega mjög professjonal og hefur alltaf verið það, var það leikmaður hjá mér í Lyngby, stórkostlegur þar og líka með íslenska landsliðinu,“ segir Freyr við Vísi. „Hann er líka skemmtilegur náungi, algjör fagmaður og maður sem hefur þurft að hafa fyrir hlutunum í lífinu. Hann hefur átt stórkostlegan feril og er síðan kominn strax í þessa stöðu sem einn sá fyrsti sem fer utan Íslands í stöðu yfirmanns knattspyrnumála. Mér finnst það líka bara mikil ábyrgð á mér að ná því besta út úr honum og ég hef mikla trú á okkar samvinnu. Það eru miklir möguleikar í því, þannig að mér finnst þetta bara spennandi og skemmtilegt og hef mikla trú á þessu,“ segir Freyr. Þeir Alfreð eru í daglegum samskiptum og tala mikið saman, nú þegar finna þarf leiðir til að koma Rosenborg úr fallsæti og aftur meðal bestu liða Noregs. „Já, hingað til tölum við allt of mikið saman en það er betra en ekki. Við munum vera í miklu sambandi en þurfum kannski að finna – einhvern tímann þegar við erum komnir aðeins lengra inn í samvinnuna – smá jafnvægi í því að tala ekki bara um vinnuna alltaf þegar við hittumst,“ segir Freyr. Á þeim stöðum sem Freyr hefur þjálfað hafa íslenskir leikmenn ítrekað dúkkað upp en mun hann áfram horfa til íslenskra leikmanna í nýju starfi hjá Rosenborg? „Ég horfi bara alltaf á góða leikmenn sem hafa rétt hugarfar en ég er með frábæran mann til að stjórna þessum takti og það er Alfreð Finnbogason sem er æðsti klerkur þar. Þannig að ég er bara honum til haldls og trausts og við gerum þetta auðvitað í sameiningu, ásamt „scoutum“ (njósnurum), þannig að góðir íslenskir leikmenn koma auðvitað til greina ásamt öllum öðrum,“ segir Freyr.
Norski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Fleiri fréttir „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Sjá meira